Fara í efni
Fréttir

Ágúst, Andri og Dagur í stóra landsliðshópnum

Ágúst Elí Björgvinsson, Andri Már Rúnarsson og Dagur Gautason. Myndir: Ármann Hinrik og Facebook síða HC Erlangen.

KA-mennirnir Ágúst Elí Björgvinsson markvörður og hornamaðurinn Dagur Gautason, og Þórsarinn Andri Már Rúnarsson, leikmaður HC Erlangen í Þýskalandi, eru í 35 leikmanna hópi sem Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari í handbolta hefur valið fyrir heimsmeistaramótið í Þýskalandi í janúar og tilkynntur var í dag. Lokahópurinn verður valinn úr þessum leikmönnum.

Fyrsti leikur Íslands er gegn Barein 15. janúar í Magdeburg.

Landsliðshópurinn – í sviga leikjafjöldi og mörk.

Markmenn
Ágúst Elí Björgvinsson, KA (53/3)
Björgvin Páll Gústavsson, Valur (300/27)
Ísak Steinsson, Drammen (5/0)
Jón Þórarinn Þorsteinsson, Selfoss (2/0)
Viktor Gísli Hallgrímsson, Barcelona (89/2)

Aðrir leikmenn
Andri Már Rúnarsson, HC Erlangen (10/9)
Arnar Freyr Arnarsson, SG Flensburg-Handewitt (122/134)
Arnór Snær Óskarsson, Valur (4/1)
Birgir Már Birgisson, GC Amicitia Zürich (0/0)
Bjarki Már Elísson, Paris Saint-Germain (141/465)
Dagur Gautason, KA (0/0)
Einar Þorsteinn Ólafsson, HSV Hamburg (38/10)
Elliði Snær Viðarsson, VfL Gummersbach (76/182)
Elvar Ásgeirsson, Ribe-Esbjerg (22/26)
Elvar Örn Jónsson, SC Magdeburg (100/225)
Freyr Aronsson, Haukar (0/0)
Garðar Ingi Sindrason, VfL Gummersbach (0/0)
Gísli Þorgeir Kristjánsson, SC Magdeburg (88/215)
Gunnar Róbertsson, Valur (0/0)
Haukur Þrastarson, Rhein-Neckar Löwen (62/87)
Janus Daði Smárason, Barcelona (111/212)
Jóhannes Berg Andrason, TTH Holstebro (0/0)
Jón Bjarni Ólafsson, FH (4/8)
Kristján Örn Kristjánsson, Skanderborg (41/86)
Orri Freyr Þorkelsson, Sporting (47/166)
Óðinn Þór Ríkharðsson, Kadetten Schaffhausen (73/225)
Ómar Ingi Magnússon, SC Magdeburg (105/403)
Reynir Þór Stefánsson, MT Melsungen (7/19)
Sigvaldi Björn Guðjónsson, Kielce (92/237)
Stiven Tobar Valencia, Valur (24/31)
Sveinn Jóhannsson, Chambéry (17/26)
Teitur Örn Einarsson, VfL Gummersbach (61/60)
Viggó Kristjánsson, HC Erlangen (84/260)
Ýmir Örn Gíslason, Frisch Auf! Göppingen (119/48)
Þorsteinn Leó Gunnarsson, Porto (29/50)