Samningurinn um Blöndulínu 3
Bæjarstjórinn á Akureyri, Ásthildur Sturludóttir, og forstjóri Landsnets, Ragna Árnadóttir, undirrituðu í vikunni samning varðandi uppbyggingu Blöndulínu 3, 220 kV háspennulínu og legu Blöndulínu 3 í jörð við Akureyri.
Samninginn má sjá í heild hér að neðan
Inngangur - sjónarmið aðila
Akureyrarbær leggur áherslu á að Blöndulína 3, sem liggja mun sem loftlína frá tengivirkinu við Rangárvelli, verði lögð í jörð að hluta innan þéttbýlis Akureyrar, um leið og tæknilegar forsendur gefast, í samræmi við stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku.
Þá leggur Akureyrarbær áherslu á að flutningskerfið hamli ekki þróun og skipulagi íbúðabyggðar innan sveitarfélagsmarkanna. Núverandi aðalskipulag gildir til ársins 2030, en Akureyrarbær vekur athygli á því að í upphafi kjörtímabils skal sveitarstjórn taka afstöðu til þess hvort endurskoða skuli gildandi aðalskipulag.
Í ljósi stefnu stjórnvalda og nálægðar tengivirkis á Rangárvöllum og línuleiðarinnar við íbúðabyggð telur Akureyrarbær nauðsynlegt að gera samning um við hvaða forsendur Landsnet skuli leggja loftlínu frá tengivirkinu við Rangárvelli í jörð.
Landsneti ber að tryggja gagnsæi og jafnræði meðal aðila í störfum sínum ásamt því að stuðla að hagkvæmni og öryggi við uppbyggingu flutningskerfisins skv. raforkulögum en einnig má benda á skyldur sveitarfélaga gagnvart 9gr. c. í sömu lögum. Í þingsályktun um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku segir m.a. að treysta skuli flutningskerfið betur, tengja betur lykilsvæði og tryggja afhendingaröryggi raforku um land allt.
Blöndulína 3 er grundvallarforsenda til að bæta öryggi og afhendingu raforku innan sveitarfélags Akureyrarbæjar sem og víðar.
Við gerð áætlunar um uppbyggingu flutningskerfisins, kerfisáætlun, ber Landsneti að taka mið af framtíðarþróun raforkuframleiðslu og raforkunotkunar og tengja alla þá sem eftir því sækjast að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
1. grein
Sem hluti af nauðsynlegri eflingu og uppbyggingu flutningskerfisins hefur Landsnet um langt skeið unnið að undirbúningi framkvæmda við Blöndulínu 3, 220 kV háspennulínu, sem liggja mun frá tengivirki við Blöndu að tengivirki við Rangárvelli á Akureyri. Ekki er gert ráð fyrir framkvæmdinni á gildandi aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030, en bæjarstjórn hefur samþykkt að auglýsa breytingu á aðalskipulagi vegna Blöndulínu 3 og 1 annarra háspennulína skv. 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Línuleiðin er innan þéttbýlismarka Akureyrarbæjar, en fer um svæði sem eru ýmist skilgreind sem óbyggð, íþróttasvæði (hestar) eða skógræktar- og landgræðslusvæði.
Fyrir liggur að tæknilega er ekki unnt að leggja Blöndulínu 3 í jörð við Akureyri fyrr en 220 kV flutningskerfið hefur verið byggt upp og tengt milli tengivirkis við Fljótsdalstöð á Austurlandi og tengivirkis á Klafastöðum í Hvalfirði. Ástæðan er m.a. sú að takmarkanir eru á nýtingu jarðstrengja, en aukin lega í jörð getur leitt til veikleika flutningskerfisins.
Aukið svigrúm til jarðstrengslagna innan Blöndulínu 3 fæst fyrst og fremst í kjölfar kerfisstyrkingar sem hlýst af tengingu Holtavörðuheiðarlína 1 og 3 frá Blöndu að Hvalfirði. Sú styrking hefur í för með sér að mögulegt er að leggja jarðstreng um allt að 5 km við Rangárvallaenda Blöndulínu 3.
2. grein
Samkomulag er um að Blöndulína 3, 220 kV loftlína, tengist við Rangárvelli – tengivirki í samræmi við breytingu sem gerð verður á Aðalskipulagi Akureyrarbæjar 2018-2030.
Þar sem tæknileg mál hamla því að hægt sé að bæta við 220 kV jarðstrengjum við flutningskerfi raforku á Eyjafjarðarsvæðinu í dag og þar til búið er ljúka samtengingu landshluta, eins og að framan greinir, mun verða ráðist í eftirfarandi framkvæmdir innan Akureyrar og í eftirfarandi röð í kjölfar útgáfu framkvæmdaleyfis fyrir Blöndulínu 3:
1. Dalvíkurlína 1, sem er loftlína, verður lögð í jörð innan Akureyrar en möstur ekki tekin niður.
2. Rangárvallalínu 1 verður breytt með þeim hætti að leiðarar línunnar færast yfir á möstur sem áður voru hluti Dalvíkurlínu 1 og möstur sem þá losna verða tekin niður.
3. Blöndulína 3 verður byggð sem loftlína með tréstauramöstrum frá tengivirkislóð við Rangárvelli að gili við Hrappstaðaá og þaðan með endanlegum stálmöstrum að sveitarfélagamörkum við Hörgársveit. Landsnet mun framkvæma þann hluta sem tengist Rangárvöllum á síðasta hluta framkvæmdartímabils.
4. Rangárvallalína 1, þ.e. eins og hún verður eftir flutning sbr. tl. 2, verður rifin 3 árum eftir spennusetningu Blöndulínu 3.
Eftir þann tíma verður Blöndulína 3 eina loftlínan í flutningskerfinu sem tengist við Rangárvelli, aðrar háspennulínur Landsnets innan Akureyrarbæjar verða í jarðstrengjum.
3. grein
Samkvæmt samningi aðila skal Akureyrarbær njóta fyrsta forgangs við lagningu jarðstrengs á loftlínu milli Akureyrar og Hvalfjarðar. Skylt er að ráðast í lagningu jarðstrengs milli Hrappstaðaár og Rangárvalla innan þéttbýlismarka sbr. ákvæði í stefnu stjórnvalda, um leið og tengingu verður komið á milli Blöndu og tengivirkis á Klafastöðum í Hvalfirði. Þá skal jafnframt heimilt og skylt að hefja slíkar framkvæmdir fyrr, komi fram nýjar eða breyttar forsendur, sem ekki eru þekktar við undirritun samnings þessa, enda leiði þær með fullnægjandi hætti í ljós að notkun jarðstrengja hafi ekki neikvæð áhrif á flutningsgetu eða rekstraröryggi flutningskerfis raforku.
Tæknilegar forsendur til lagningar jarðstrengs samkvæmt ákvæði þessu teljast uppfylltar við það tímamark þegar tenging er komin á 220kV kerfinu milli Fljótsdals og Klafastaða.
Um leið og tæknilegar forsendur skapast til að leggja Blöndulínu 3 í jörð innan þéttbýlis Akureyrar verður jarðstrengur lagður frá við Hrappstaðaá og trémastrakaflinn Rangárvöllum rifinn niður að strengendamastri og fjarlægður í framhaldi. Jarðstrengskafli innan Akureyrar verður spennusettur eigi síðar en þremur árum eftir að tæknilegar forsendur eru uppfylltar. Landsnet mun greiða allan framkvæmdakostnað sem hlýst af því að hluti Blöndulínu 3 verði lagður í jörðu, svo sem niðurrifi loftlínu og tengdra mannvirkja sem og frágangi lands og umhverfis án hlutdeildar Akureyrarbæjar.
Á meðan loftlína er til staðar innan marka sveitarfélagsins skal Landsnet leitast við að lágmarka sjónræn, umhverfisleg og skipulagsleg áhrif framkvæmdarinnar og hafa virkt samráð við sveitarfélagið um útfærslu mannvirkja, staðsetningu þeirra og aðlögun að ski pulagi og framtíðaruppbyggingu svæðisins.
Til að tryggja gagnsæi og eftirfylgni með framkvæmd samningsins skulu báðir aðilar skipa einn fulltrúa til að fylgjast með framvindu verkefnisins. Fulltrúarnir skulu meta hvort tæknilegar forsendur samningsins séu uppfylltar og gefa árlega út stöðuskýrslu um framkvæmd hans.
4. grein
Landsnet mun við gerð kerfisáætlana gera ráð fyrir því að unnt verði að leggja jarðstreng í samræmi við ákvæði 3. gr., að skilyrðum greinarinnar uppfylltum og með almennum fyrirvara um kerfisaðstæður á hverjum tíma fyrir sig. Þar með er hann kominn inn á áætlun og gert ráð fyrir honum í samræmi við aðrar framkvæmdir í kerfinu. Þannig verður búið að „taka frá“ rýmd fyrir jarðstreng í Blöndulínu 3.
5. grein
Rísi upp ágreiningur milli aðila um framkvæmd samkomulags þessa skulu þeir leita allra leiða í góðri trú til að jafna hann, en ella skal slíkum ágreiningi skotið til héraðsdóms Norðurlands eystra til úrlausnar.