Fara í efni
Fréttir

Blöndulína fer í jörð á kostnað Landsnets

Mynd: Þorgeir Baldursson

„Landsnet mun greiða allan framkvæmdakostnað sem hlýst af því að hluti Blöndulínu 3 verði lagður í jörðu, svo sem niðurrifi loftlínu og tengdra mannvirkja sem og frágangi lands og umhverfis án hlutdeildar Akureyrarbæjar. “

Þetta segir í samningi Akureyrarbæjar og Landsnets sem undirritaður var í vikunni vegna lagningar Blöndulínu 3, 220 kV háspennulínu frá Blönduvirkjun að Rangárvöllum á Akureyri. Niðurstaðan er sú, eins og akureyri.net hefur áður greint frá, að línan verður á möstrum í bæjarlandinu næstu árin; margir höfðu mótmælt þeirri niðurstöðu, enda var krafa sveitarfélagsins sú að línan yrði lögð í jörðu en Landsnet hélt því fram að það væri ekki tæknilega mögulegt sem stendur. Einnig höfðu gagnrýnendur lýst áhyggjum af því að kostnaður vegna lagningu línunnar í jörðu myndi falla á bæinn þegar þar að kæmi og nefndu dæmi um deilur Hafnarfjarðarbæ við Landsnet í því sambandi.

Ofanjarðar næstu árin

Skv. samningnum verður línan ofanjarðar til bráðabirgða en komið í jörðu eins fljótt og auðið er þegar tæknilegar forsendur eru uppfylltar og það án kostnaðarþátttöku sveitarfélagsins. 

Ekki er mögulegt að hafa nema ákveðinn hluta háspennulína í jörðu en skv. samningnum „skal Akureyrarbær njóta fyrsta forgangs við lagningu jarðstrengs á loftlínu milli Akureyrar og Hvalfjarðar.“ Í samningnum segir einnig: „Skylt er að ráðast í lagningu jarðstrengs milli Hrappstaðaár og Rangárvalla innan þéttbýlismarka sbr. ákvæði í stefnu stjórnvalda, um leið og tengingu verður komið á milli Blöndu og tengivirkis á Klafastöðum í Hvalfirði. Þá skal jafnframt heimilt og skylt að hefja slíkar framkvæmdir fyrr, komi fram nýjar eða breyttar forsendur, sem ekki eru þekktar við undirritun samnings þessa, enda leiði þær með fullnægjandi hætti í ljós að notkun jarðstrengja hafi ekki neikvæð áhrif á flutningsgetu eða rekstraröryggi flutningskerfis raforku.“

„Ástættanleg“ niðurstaða fyrir Akureyrarbæ

Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, fagnar því að málið sé loksins í höfn. „Þetta hefur tekið sinn tíma, enda um flókið verkefni að ræða sem snertir grunnstoðir sveitarfélagsins og verður til þess að tryggja raforkuöryggi til framtíðar. Niðurstaðan er að okkar mati mjög ásættanleg fyrir Akureyrarbæ,“ segir hún á vef sveitarfélagsins.

„Þetta er mjög ánægjulegur áfangi í þessu mikilvæga innviðaverkefni,“ segir Ragna Árnadóttir, forstjóri Landsnets á sama vettvangi. „Blöndulína 3 mun gegna lykilhlutverki við áframhaldandi uppbyggingu atvinnulífs og samfélags á Norðurlandi. Við þökkum fulltrúum Akureyrarbæjar og ekki síst Ásthildi Sturludóttur bæjarstjóra fyrir gott samstarf.“

  • Hér má sjá samning Akureyrarbæjar og Landsnets í heild:

Samningurinn um Blöndulínu 3