Fara í efni
Fréttir

Sala hafin á flugi til London út febrúar

Breska flugfélagið easyJet tilkynnti í morgun flugáætlun sína fyrir tímabilið desember 2024 - febrúar 2025. Nú er hægt að bóka ferðir með flugfélaginu á milli Akureyrar og Gatwick flugvallar í London á þessu tímabili, sem bætist við október og nóvember sem áður hafði verið tilkynnt um. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Markaðsstofu Norðurlands.

Flogið verður tvisvar í viku, á þriðjudögum og laugardögum. „Viðtökurnar hafa við fluginu hafa verið frábærar og eftir því sem liðið hefur á hefur erlendum ferðamönnum fjölgað mjög í vélum easyJet. Fyrstu mánuðina sem flogið var í vetur voru Norðlendingar í meirihluta í vélum flugfélagsins og því ljóst að eftirspurn heimamanna hefur haft jákvæð áhrif á áætlanir flugfélagsins fyrir næsta vetur,“ segir í tilkynningunni.

„Í vetur hefur Markaðsstofa Norðurlands birt viðtöl við fólk í ferðaþjónustu þar sem meðal annars var spurt um áhrifin af auknu millilandaflugi. Augljóst er af svörunum að dæma, að áhrifin hafa verið veruleg og jákvæð. Með auknum fjölda ferðamanna yfir vetrartímann minnkar árstíðasveiflan sem hefur einkennt norðlenska ferðaþjónustu sem gefur fyrirtækjum betri tækifæri til að bjóða upp á heilsársstörf og þróa vöruframboð yfir allt árið.“