Fara í efni
Fréttir

Píratar leita fólks á lista – Einar ekki með

Píratar auglýsa þessa dagana eftir frambjóðendum í prófkjör vegna bæjarstjórnarkosninganna á Akureyri í vor. Á morgun, föstudag 4. febrúar, verða Píratar með opið hús í Ketilhúsinu þar sem þau Einar Brynjólfsson, oddviti Pírata í Norðausturkjördæmi, þingmennirnir Halldóra Mogensen og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, og Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, bæjarfulltrúi Pírata í Kópavogi, „taka á móti áhugasömum og jafnvel tilvonandi bæjarstjórnarfulltrúum Pírata,“ eins og segir í tilkynningu.

Viðburðurinn, sem hefst klukkan 19.00, er opinn öllum og veitingar verða í boði.

Í tilkynningu frá Pírötum er greint frá því að Einar Brynjólfsson ætli ekki að gefa kost á sér í vor og vísað í færslu hans á Facebook: „Í vor verður gengið til kosninga til sveitarstjórna, eins og alþjóð veit. Ég mun ekki gefa kost á mér í höfuðborg hins bjarta norðurs, aldrei þessu vant, en vil hvetja öflugt fólk sem brennur fyrir íbúalýðræði og vönduðum vinnubrögðum til að láta að sér kveða hjá okkur Pírötum. Tökum þátt í lýðræðinu!“

Í tilkynningu Pírata segir: „Einar var kjörinn á þing fyrir Pírata árið 2016. Hann leiddi lista Pírata í Norðausturkjördæmi með glæsibrag í alþingiskosningunum í fyrra en hafði ekki erindi sem erfiði. Nú hyggst hann snúa sér að öðrum verkefnum og ætlar að klára M.A. námið í lögfræði við Háskólann á Akureyri. Einar er þó ekki alveg hættur afskiptum af stjórnmálum en hann situr í stjórn Pírata í Norðausturkjördæmi og mun verða arftökum sínum innan handar,“ segir í tilkynningu frá Pírötum.