Fara í efni
Fréttir

Ósannfærandi hjá KA í þriðja tapleiknum

Myndir: Ármann Hinrik

KA beið lægri hlut gegn Keflavík í viðureign liðanna í fjórðu umferð efstu deildar karla í knattspyrnu, Bestu deildinni, í dag. Leikið var á gervigrasvelli KA – Greifavellinum sunnan við KA-heimilið, og 2:1 sigur nýliðanna á andlausum KA-mönnum var fyllilega sanngjarn. Uppskeran hjá KA í fjórum fyrstu umferðunum er aðeins eitt stig og þar af hafa allir þrír heimaleikirnir tapast.

Fyrir leikinn var jafnt á komið með liðunum. Bæði töpuðu fyrstu tveimur leikjum sínum og gerðu síðan jafntefli í þriðju umferð. KA gerði þrjár breytingar í byrjunarliðinu frá síðasta leik. Inn í liðið komu þeir Samuel Kroon, sem missti af síðasta leik, og þeir Oliver Heiðarsson og Diego Montiel sem voru í byrjunarliðinu í fyrsta sinn. Framherjinn Jakob Héðinn Róbertsson og varnarmennirnir Kári Gautason og Markús Máni Pétursson settust á bekkinn. Rodri byrjaði sem miðvörður í stað Markúsar.

Mark Olivers Heiðarssonar í dag – það fyrsta sem hann gerir fyrir KA. Markinu er lýst hér að neðan. Myndir: Ármann Hinrik

Oliver náði forystunni fyrir KA

Leikmenn liðanna voru framan af leik að átta sig smám saman á þeirri staðreynd að Pétur Guðmundsson dómari hafði ekki í hyggju að flauta aukaspyrnur út af einhverjum smámunum. Keflvíkingar voru annars sprækari strax frá byrjun en áhorfendur gerðu sér líklega vonir um að KA-menn myndu vakna til lífsins eftir hálftíma leik eða svo, eins og „vanalega“ í síðustu leikjum. En þó að KA hafi einmitt náð að skora fyrsta mark leiksins eftir akkúrat hálftíma, reyndist það ekki fyrirboði þess að liðið hrykki í gang. Fram að því hafði Keflavík átt hættuleg færi, meðal annars tvö stangarskot, og í raun ótrúlegt að þeir skyldu ekki hafa verið búnir að skora áður en KA komst yfir.

Markið skoraði Oliver Heiðarsson en Ásgeir markvörður Keflvíkinga fór í skógarhlaup út úr vítateig sínum þegar lúmsk sending Jeppe Pedersen splundraði vörninni. Oliver var á undan í boltann, lék framhjá Ásgeiri og renndi knettinum í markið. Fyrsta mark Olivers fyrir KA og líklega einn af fáum ljósum punktum sem hægt er að taka út úr leik heimamanna í dag.

Davíð Helgi Aronsson (númer 5 fyrir miðri mynd) jafnar metin fyrir Keflvíkinga. „Varnarleikur“ Jeppe Pedersen við hlið hans var ekki merkilegur. Mynd: Ármann Hinrik 

Markið breytti hins vegar engu með frammistöðu KA því Keflavík hélt áfram að vera sprækara og ákveðnara liðið og jöfnunarmark þeirra kom skömmu fyrir leikhlé. Davíð Helgi Aronsson potaði þá boltanum í markið af markteig eftir hornspyrnu en líklega á Hallgrímur þjálfari eftir að kenna Jeppe Pedersen hvernig gæta skal andstæðings í föstum leikatriðum. Ólíklegt að Jeppe fái að bjóða aftur upp á gæslu af svipuðu tagi og hann sýndi þarna.

Tvær skiptingar í leikhléi dugðu skammt

Hallgrímur gerði tvær breytingar á KA-liðinu í leikhléinu og vonaðist líklega eftir að liðið myndi hressast í seinni hálfleik, eins og raunin varð gegn ÍA í síðustu umferð. Markús kom inn á í miðvarðarstöðuna og Rodri færði sig í sína gömlu stöðu fyrir framan varnarmennina. Þá kom Hallgrímur Mar Steingrímsson inn á, en hann hefur verið fjarri góðu gamni síðan í 1. umferð og KA-liðið hefur saknað hans mjög. Danijel Dejan Djuric fór af velli en hann komst lítið í takt við leikinn í fyrri hálfleik og í raun hefur lítið sést til hans það sem af er mótinu.

Skemmst er frá því að segja að KA-liðið kom ekkert sprækara til leiks í seinni hálfleik. Liðið var sundurlaust og andlaust og það smitaðist til áhorfenda sem létu lítið fara fyrir sér. Það kom því ekki á óvart að Keflavík skyldi bæta við marki eftir um fimmtán mínútna leik. Enginn KA-maður gerði atlögu að löngu útsparki Ásgeirs Keflavíkurmarkvarðar, Eiður Orri Ragnarsson tók boltann niður og sendi inn fyrir staða vörnina þar sem Stefan Ljubicic kom aðvífandi og lagði boltann snyrtilega í netið framhjá Steinþóri. Þremur mínútum síðar endurtók þeir félagar leikinn – Eiður sendi inn fyrir, Stefan lagði boltann framhjá Steinþóri í markinu en núna kom Samuel Kroon aðvífandi og bjargaði á línu.

Sigurmark Keflvíkinga: Stefan Ljubicic um það bil að senda boltann framhjá Steinþóri Má eftir sendingu Eiðs Orra Ragnarssonar. Mynd: Ármann Hinrik. 

Örlítið líf undir lokin dugði ekki til

Síðustu 25 mínúturnar eða svo hresstust KA-menn aðeins, þegar Keflvíkingar féllu til baka, og sóknartilburðirnir komu flestir í gegnum Hallgrím Mar. KA fékk nokkur hálffæri og eitt mjög gott færi, þegar Oliver þrumaði boltanum í stöngina á Keflavíkurmarkinu. Allt kom fyrir ekki og nýliðar Keflavíkur fögnuðu fyrsta sigri sínum í deildinni. Staða KA við botn deildarinnar með aðeins eitt stig er hins vegar áhyggjuefni, rétt eins og andlaus frammistaða liðsins í dag. Þótt liðið hafi tapað fyrstu tveimur heimaleikjum sínum gegn sterkum andstæðingum var frammistaðan samt alls ekki slök. Í dag var hún hins vegar arfaslök.

Það vill hins vegar KA-mönnum til happs að næsti leikur liðsins er heldur betur heppilegur fyrir þá til að gíra sig upp í baráttuhug. Næstkomandi laugardag fara þeir í Þorpið og mæta erkióvinunum í Þór, sem eru heldur betur með kassann úti þessa dagana, eftir góða byrjun á Íslandsmótinu. Nái KA-menn ekki upp baráttuandanum og viljanum fyrir svoleiðis leik – þá veit ég ekki hvenær þeim tekst það.

Leikskýrslan á vef KSÍ