Fréttir
Karlalið KA í blaki Íslandsmeistari
26.04.2026 kl. 17:45
Nýbakaðir Íslandsmeistarar KA í Laugardalshöllinni í dag. Mynd af Facebook síðu KA.
KA varð Íslandsmeistari karla blaki í dag með sigri á Þrótti í fimm hrinu leik í Laugardalshöllinni, heimavelli Þróttar í Reykjavík. Fyrir viðureign dagsins hafði KA unnið tvo leiki en Þróttur einn. Þetta er annað árið í sem KA verður Íslandsmeistari karla og í níunda skipti alls.
Þróttur vann fyrstu hrinuna 25:17, KA þá næstu 25:21, Þróttur þriðju 25:22 og KA fjórðu 25:19. Allt í járnum og oddahrinu þurfti til, þar sem KA-strákarnir höfðu betur, 15:10.