Fara í efni
Fréttir

Ólafur og Agnes fara í Skógarböðin

Í Skógarböðunum! Frá vinstri: Ólafur Hjörtur Ólafsson, Friðrik Veigar Ólafsson, Agnes Jónsdóttir og Tinna Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Skógarbaðanna. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Ólafur Hjörtur Ólafsson vann vetrarkort í Skógarböðin í afmælisleik Akureyri.net og Agnes Jónsdóttir vann gjafabréf fyrir tvo. Dregið var í afmælisleiknum 1. desember og fengu hinir heppnu vinninga sína afhenta í gær.

Ólafur og Agnes mættu í Skógarböðin og framkvæmdastjórinn, Tinna Jóhannsdóttir, afhenti þeim gjafabréfin. Friðrik Veigar Ólafsson, sonur Ólafs, var með í för. Bæði voru þau Ólafur og Agnes lukkuleg með vinninginn enda varla annað hægt. Ólafur datt sannarlega í lukkupottinn því hann getur farið  á þennan dýrðarstað hvern einasta dag fram á vor ef hann kýs svo!

Ótrúleg tilviljun!

Eins og fram kom í gær var það Gerður Jónsdóttir sem vann flug fyrir tvo með Niceair til einhvers áfangastaðar félagsins. Svo ótrúlega vill til að þær Agnes eru systur. Nokkur hundruð nöfn voru í hattinum þegar dregið var – nöfn allra sem styðja við bakið á Akureyri.net með mánaðarlegu framlagi – og lukkudísirnar voru svo sannarlega á bandi systranna!

Akureyri.net óskar þremenningunum innilega til hamingju með vinningana og þakkar þeim fyrir stuðninginn. Niceair og Skógarböðunum er einnig þakkað af heilum hug fyrir að taka þátt í þessum skemmtilega leik með Akureyri.net.

Gerður Jónsdóttir vann flug með Niceair