Fara í efni
Fréttir

Gerður Jónsdóttir vann flug með Niceair

Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Gerður Jónsdóttir datt í lukkupottinn þegar dregið var í afmælisleik Akureyri.net á dögunum. Hún vann flug fyrir tvo með Niceair til einhvers áfangastaðar félagsins og Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson framkvæmdastjóri Niceair afhenti Gerði gjafabréf því til staðfestingar í dag.

Gerður hefur stutt við bakið á Akureyri.net með mánaðarlegu framlagi um langa hríð. Hún var að sjálfsögðu alsæl með vinninginn, sagðist þegar hafa flogið þrisvar með Niceair og hrósaði félaginu í hástert.

Innilega til hamingju Gerður og takk fyrir stuðninginn!

Einnig var dregið um gjafabréf frá Skógarböðunum í afmælisleiknum. Vinningshafar fá þau afhent síðar í dag og eftir það verður upplýst hverj þau heppnu eru.