Heimsóknir rúmlega tvöfaldast á einu ári
Í dag eru sex ár síðan frétta- og mannlífsvefurinn akureyri.net var endurreistur af núverandi eigendum. Vefurinn hefur vaxið og dafnað síðan, síðasta árið hefur lesendum fjölgað gríðarlega og aðsókn á þessu ári verið með hreinum ólíkindum.
„Einstakir gestir“ (IP tölur) í september voru rúmlega tvöfalt fleiri en á sama tíma í fyrra – voru 205.500 í september! Hver IP tala er aðeins talin einu sinni, sama hve viðkomandi fer oft inn á vefinn í mánuði. Það sem af er þessum mánuði eru heimsóknir á akureyri.net 16.600 á meðaltali á dag.
Það var föstudaginn 13. nóvember 2020 sem vefurinn fór í loftið á ný eftir að hafa legið í dvala í nokkur ár. Aftur ber 13. dag nóvember mánaðar upp á föstudag og ekki ástæða til annars en líta á hann sem happadag!
Starfsmönnum og ótrúlegum fjölda lesenda víða um land, og úti í heimi, eru færðar hamingjuóskir í tilefni dagsins!
Þegar vefurinn birtist lesendum á ný fyrir sex árum var í raun haldið út í óvissuna en í ljós kom að mikil þörf var og er fyrir staðarmiðil eins og akureyri.net. Hann birtir fjölbreytt, skemmtilegt og vandað efni á hverjum einasta degi ársins; lesendum hefur verið boðið upp á um það bil níu fréttir, greinar, pistla eða annað efni að meðaltali á hverjum einasta degi síðan 13. nóvember 2020.
Viðbrögð voru strax mjög góð, lesturinn mikill og hefur aukist jafnt og þétt allar götur síðan.
Til gamans má geta þess að fyrir sléttu ári var nefnt í frétt á afmælisdeginum að met hefði verið slegið í nýliðnum október; aldrei hefðu fleiri komið inn á akureyri.net í einum mánuði. Einstakir gestir (IP tölur) í október 2025 voru 93.473 – en í september á þessu ári var talan rúmlega tvöfalt hærri!
Í september 2026 komu 205.550 IP tölur inn á akureyri.net; hver sími telst ein IP tala og hver tölva önnur. Margir eiga því tvær IP tölur eða jafnvel þrjár. Hver IP tala er aðeins talin einu sinni, sama hve viðkomandi fer oft inn á vefinn í mánuði þannig að 205.550 einstakir gestir er ótrúlegur fjöldi. Rétt er að minna á að Akureyringar eru liðlega 20.000 svo ekki þarf að velkjast í vafa um að Akureyri.net á sér marga dygga lesendur annars staðar en við Eyjafjörð.
Takk innilega fyrir frábærar viðtökur alla daga og mikinn lestur.
Áfram Akureyri - og Akureyri.net!
Bestu kveðjur,
Skapti Hallgrímsson,
ritstjóri
