Fara í efni
Fréttir

„Mikill áhugi“ er á húsunum við Hofsbót

Norðausturhorn lóðarinnar við Hofsbót. Þarna stóð lengi vel BSO-húsið – afdrep leigubílstjóra bæjarins til áratuga.

Akureyrarbær kynnti í morgun nýja tillögu að breytingu á deiliskipulagi við Hofsbót 1-3 í miðbænum. Hún felur m.a. í sér að  ekið verður í og úr bílakjallara við horn Skipagötu og Hofsbótar en ekki frá Strandgötu eins og gert er ráð fyrir í núverandi skipulagi, bílageymsla verður stækkuð, byggingamagn eykst um tæpa 1500 fermetra og rúma 1300 fermetra neðan jarðar, og lóðirnar verða sameinaðar í eina af praktískum ástæðum.

„Það er mikill áhugi á Hofsbótinni,“ sagði Sigurður Sigurðsson, aðaleigandi og framkvæmdastjóri SS Byggis, við akureyri.net í dag. Hann á þar ekki síst við áhuga verslana og fyrirtækja með skrifstofuhúsnæði í huga, en segir einnig marga spennta fyrir íbúðahúsnæði.

Fjórar byggingar

Fjórar byggingar rísa á lóðinni. Á jarðhæðum verða verslanir og þjónusta af einhverju tagi, t.d. er gert ráð fyrir veitingastað og veitingatorgi (eins og sjá má á einni myndinni hér að neðan), en á efri hæðum „er heimilt að vera með íbúðir og/eða atvinnustarfsemi“ eins og segir í tillögunni sem kynnt var í morgun.

Sigurður reiknar með að geta hafist handa við framkvæmdir á vetri komanda. Hann segir útlit húsanna á meðfylgjandi myndum nokkurn vegin það sem koma skuli. „Hönnun er mjög langt komin,“ segir hann aðspurður.

Margir velta því eflaust fyrir sér hvenær verkinu lýkur. Þegar spurt er hvenær fyrstu íbúar eða fyrirtæki geti flutt inn svarar Sigurður í léttum dúr: „Klukkan fjögur.“ Nákvæmara svar fæst ekki að sinni ...

  • Hér að neðan eru birtir ýmis atriði úr tillögu að breytingu á deiliskipulagi sem kynnt var í morgun

Tillaga að götumynd, aðkoma að bílageymslu, horft frá mótum Hofsbótar og Strandgötu. 

Lóðirnar Hofsbót 1 og 3 sameinaðar

  • Í gildandi deiliskipulagi var gert ráð fyrir sameiginlegri bílageymsla undir öllum byggingum á lóðunum tveimur, en slíkt myndi flækja skráningu bygginga og einnig öryggis- og brunamál. Því er talið heppilegra að sameina lóðirnar og líta á húsin sem eina byggingu og einn matshluta.

Aðkoma að bílageymslu færð ...

... frá Strandgötu og á hornið þar sem Skipagata og Hofsbót mætast.

  • Það er um margt óheppilegt að hafa innkeyrsluna frá Strandgötu, en þar myndi akstur bíla í og úr bílageymslunni þvera umferðagötu og liggja yfir fjölfarna gangstétt. Þetta fyrirkomulag hefði í för með sér aukna slysahættu.
  • Innkeyrsla í bílageymslu frá Strandgötu myndi skera jarðhæðina í sundur og mynda óhentugt verslunarbil á norðvesturenda byggingarinnar.
  • Aðkoma að bílageymslu á horni Skipagötu og Hofsbótar er talin öruggari og mun ekki hafa áhrif á rekstur á jarðhæðum á lóðinni eða götuásýnd bygginga. Auk þess mun bílastæðum í bílageymslu fjölga við þessa breytingu.

Bílageymsla stækkuð

  • Við uppbyggingu á lóðinni munu um 70 bílastæði í miðbænum hverfa. Til mótvægis verður bílageymslan undir Hofsbót 1-3 stækkuð og verður 50 stæðum í bílageymslu í gildandi deiliskipulagi fjölgað í allt að 100 stæði.

Tillaga að útliti, veitingatorg, horft norður eftir Hofsbót.

Syðsta húsið er fært til austurs

  • Húsið verður meira í línu við húsin norðar á lóðinni og rýmra verður um það að vestanverðu sem gefur möguleika á fallegri útfærslu á útisvæði og ásýnd yfir á útisvæðið frá Ráðhústorgi.

Aukið byggingarmagn

  • Samkvæmt gildandi deiliskipulagi er byggingarmagn ofanjarðar á sameinuðum lóðum 8.452 fermetrar en verður 9.930 fm. Þar af verða 4.870 fm nýttir undir atvinnustarfsemi, verslun, veitingastaði og skrifstofur, en 5.060 fm nýttir fyrir allt að 60 íbúðir.
  • Gildandi hámarks byggingarmagn neðanjarðar á sameinuðum lóðum er 2.080,7 fm en verður 3.400 fm, fyrir bílageymslu fyrir allt að 100 bíla, tæknirými og geymslur.

Nyrsta húsið hækkað

  • Hámarkshæð nyrsta hússins hækkar úr 16,7 metrum í 19,2 m.

Um byggingarnar

  • Allar íbúðir stærri en 55 fermetrar að stærð skulu hafa glugga til tveggja átta hið minnsta.
  • Ganga skal inn í íbúðir um lokað stigahús. Svalagangar eru ekki leyfilegir.
  • Þök skulu vera flöt eða með 8° hámarksþakhalla.
  • Allar íbúðir skulu hafa einkasvalir.
  • Á jarðhæðum skal vera atvinnustarfsemi, verslun og þjónusta, en á efri hæðum er heimilt að vera með íbúðir og/eða atvinnustarfsemi.
  • Íbúðir verði vandaðar og uppfylli allar almennar gæðakröfur og henti ólíkum aldurshópum og fjölskyldugerðum sem best til íbúðar.

Bílastæði 

  • Bílastæði fyrir íbúðir skulu vera a.m.k. eitt fyrir hverja íbúð og eitt fyrir hverja 75 fermetra atvinnuhúsnæðis ofanjarðar.
  • Stýring bílastæða skal miða að því að hægt sé að samnýta bílastæði fyrir atvinnurými og íbúa innan viðkomandi lóða.
  • Bílastæði hreyfihamlaðra skulu almennt vera í samræmi við við kafla 6.2.4 byggingarreglugerðar nr. 112/2012.
  • Bílastæði á lóð verða öll innan bílageymslu neðanjarðar.
  • Ef bílastæði verða almenn skal tryggja aðgengi að/frá bílakjallaranum að/frá almenningsrýmum ofanjarðar.
  • Hægt verður að fækka bílastæðum um fimm ef komið er fyrir einu deilibílastæði ásamt samningi við deilibílaþjónustu til þriggja ára. Að hámarki má koma fyrir fimm deilibílastæðum, en þeim má fjölga ef reynslan af notkun þeirra er jákvæð.
  • Hægt verður að fækka bílastæðum ef sýnt er fram á að hægt sé að samnýta bílastæði milli mismunandi landnotkunar. Rökstyðja þarf fækkun bílastæða með samgöngumati þar sem sýnt er framá hversu hátt hlutfall stæða verða samnýtt og fyrirhuguð stýring bílastæða sem stuðlar að því markmiði.

Tillaga að götumynd, horft frá horni Hofsbótar og Strandgötu. Frá þessu sjónarhorni blasti eitt sinn við BSO-húsið sem nýlega var flutt á lóð Jólagarðsins í Eyjafjarðarsveit.

„... fjölbreyttara og líflegra umhverfi...“

Á vef Akureyrarbæjar segir að tillagan, sem kynnt var í morgun, sé liður í áframhaldandi þróun miðbæjarins og marki „mikilvægt skref í þeirri framtíðarsýn að efla mannlíf, þjónustu og aðdráttarafl miðbæjarins.“ Þar segir einnig: „Miðbær Akureyrar hefur tekið miklum breytingum á undanförnum árum og notið vaxandi vinsælda meðal bæði bæjarbúa og gesta. Með nýju tillögunni skapast tækifæri til að styrkja þá þróun og leggja grunn að fjölbreyttara og líflegra umhverfi þar sem verslun, þjónusta, atvinnulíf og búseta fara saman.“

Tillöguna má nálgast á Skipulagsgátt.is, í Ráðhúsi Akureyrar og á vef Akureyrarbæjar frá 19. ágúst til 1. október 2026. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 1. október 2026, að því er segir á vef bæjarins.