Fara í efni
Fréttir

Menntaskólinn biður fyrrum nemanda afsökunar

Karl Frímannsson er skólameistari Menntaskólans á Akureyri.

Skólameistari Menntaskólans á Akureyr, Karl Frímannsson, hefur sent frá sér yfirlýsingu í nafni skólans þar sem fyrrum nemandi, sem hrökklaðist frá námi þar vorið 2021 vegna sögusagna og alvarlegra ásakana, afsökunar á að ekki hafi tekist að rétta hlut hans meðan á námi hans við MA stóð og standa vörð um rétt hans.

Í yfirlýsingunni kemur fram að skólinn hafi unnið með mál þessa fyrrum nemanda skólans. Hann hafi síðan fengið á sig sams konar ásakanir í Menntaskólanum við Hamrahlíð síðastliðið haust. Þær hafi verið skoðaðar af ráðgjafarhópi á vegum mennta- og barnamálaráðuneytisins og hafi ekki reynst eiga sér stoð í raunveruleikanum. 

„MA lítur málið alvarlegum augum enda hafa þessar sögusagnir haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir umræddan nemanda. Af hálfu skólans er hann beðinn afsökunar á að ekki hafi tekist að rétta hlut hans meðan á námi hans stóð í MA og standa vörð um hans rétt,“ segir meðal annars í yfirlýsingu skólans. Þá er tekið fram að skólinn hafi í vetur tekið virkan þátt í vinnu mennta- og barnamálaráðuneytisins um nýja viðbragðsáætlun í málum af þessu tagi og muni innleiða hana þegar hún verður birt á næstu vikum.