Fara í efni
Fréttir

Með sameiningu yrði til mun öflugri stofnun

Fundurinn í Hofi í dag. Frá vinstri, Sigríður Huld Jónsdóttir, skólameistari VMA, Ásmundur Einar Daðason ráðherra og Karl Frímannsson skólameistari MA. Ljósmynd: Birgir Orri Ásgrímsson

Mennta- og barnamálaráðherra hyggst sameina Menntaskólann á Akureyri (MA) og Verkmenntaskólann á Akureyri (VMA) eins og Akureyri.net greindi frá áðan.

  • Fyrirsögn fyrri fréttarinnar var Ákveðið að MA og VMA sameinist, en rétt að taka fram að eftir að fréttin birtist sagði ráðherra á fundinum að tekin hefði verið ákvörðun um að stefna að því að sameina skólana. Að markmiðið væri að sameina skólana með einhverjum hætti.

„Vinna hefst strax við að greina tækifæri, kosti og galla þess að sameina skólana í samstarfi við starfsfólk beggja skóla, nemendur og foreldra, og munu skólameistarar VMA og MA stýra þeirri vinnu. Verkefnastjóri mun halda utan um vinnuna og munu skólarnir í sameiningu skila drögum að skipulagi og uppbyggingu hins sameinaða skóla í byrjun nóvember,“ segir í tilkynningu sem birt var á vef Stjórnarráðsins.

Menntaskólinn á Akureyri. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Nú stendur yfir fundur Ásmundar Einars Daðasonar, mennta- og barnamálaráðherra, Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA og Karls Frímannsson, skólameistari MA með starfsfólki og nemendum beggja skóla þar sem kynntar voru tillögur stýrihóps um eflingu framhaldsskóla um sameiningu skólanna tveggja auk þess sem næstu skref í ferlinu voru kynnt.

Stýrihópur mennta- og barnamálaráðherra um eflingu framhaldsskóla, sem skipaður var í apríl, gerði frumgreiningu á mögulegri sameiningu sem skilaði jákvæðum niðurstöðum. Hópurinn hefur því lagt fram þá tillögu við mennta- og barnamálaráðherra að MA og VMA verði sameinaðir í einn öflugasta framhaldsskóla landsins.

Mun öflugri stofnun

„Niðurstaða stýrihópsins er að með sameiningu þessara framhaldsskóla verði til mun öflugri stofnun til að mæta þeim áskorunum sem skólasamfélagið stendur frammi fyrir á komandi árum og vinna að þeim markmiðum sem sett hafa verið fram í menntastefnu. Hafa þarf í huga að tillagan snýr að því að sameina ólíka skóla með ólíka menningu og því skiptir máli að starfsfólk skólanna skoði nánar hvernig gera megi það svo vel fari,“ segir mennta- og barnamálaráðherra.

Í áðurnefndri tilkynningu segir: „Vinna hefst strax við að greina tækifæri, kosti og galla þess að sameina skólana í samstarfi við starfsfólk beggja skóla, nemendur og foreldra, og munu skólameistarar VMA og MA stýra þeirri vinnu. Verkefnastjóri mun halda utan um vinnuna og munu skólarnir í sameiningu skila drögum að skipulagi og uppbyggingu hins sameinaða skóla í byrjun nóvember.“

Verkmenntaskólinn á Akureyri. Ljósmynd: Þorgeir Baldursson

Merkisberar metnaðarfulls starfs

„MA og VMA hafa lengi verið merkisberar metnaðarfulls skólastarfs hvor á sinn hátt. Áherslur og námsframboð hafa verið í takt við samfélagið á hverjum tíma og skólastarfið skipt máli í uppbyggingu þess samfélags sem við búum í. Skólarnir eru stórir og eftirsóttir vinnustaðir þar sem áhersla hefur verið á fagmennsku kennara og velferð nemenda í síbreytilegum heimi. Við sameiningu skólanna verður til öflugt skólasamfélag þar sem fjölbreytt námsframboð mun veita fjölbreyttum nemendahópi tækifæri til menntunar. Hlutverk okkar er að byggja upp ungt fólk, undirbúa þau sem best undir frekara nám og til ákveðinna starfa en ekki síður til að lifa og starfa í lýðræðisþjóðfélagi,“ segir Sigríður Huld Jónsdóttir, skólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri.

Fundurinn í Hofi í dag var fjölmennur. Mynd af vef Stjórnarráðsins.

Virðing fyrir menningu og sögu

„Um leið og mikilvægt er að virðing sé borin fyrir menningu og sögu beggja skóla er full ástæða til að kanna til hlítar hvort og þá hvernig af sameiningu gæti orðið. Ef rétt er að málum staðið hefur sameinaður skóli burði til að bæta skólastarf til lengri tíma litið, bjóða upp á fjölbreyttara nám og sveigjanleika, auka þjónustu og stuðning við nemendur, gefa nemendum fleiri tækifæri til að hafa áhrif á eigið nám og auka tækifæri til hagkvæmari reksturs. Með fleiri nemendum er hægt að tryggja nægilega þátttöku í sérhæfðari áföngum og auka þannig val fyrir nemendur. Virðing fyrir mannlega þættinum og menningu þeirra stofnana sem eiga í hlut skiptir höfuðmáli ef breytingarnar eiga að leiða til framfara og ná tilgangi sínum,“ segir Karl Frímannsson, skólameistari Menntaskólans á Akureyri.

Myndi auka gæði og framboð náms

„Með sameiningu þá aukum við hagkvæmni í skipulagi námsins og skólanna sem gerir okkur kleift að auka gæði og framboð bæði bók- og starfsnáms. Allt rímar þetta vel við menntastefnu stjórnvalda þar sem lögð er áhersla á að veita framúrskarandi menntun í umhverfi þar sem öll geta lært og öll skipta máli. Auk þess hefur það verið sérstakt forgangsatriði hjá ríkisstjórninni að efla iðn- og starfsnám sem ég tel að hinn sameinaði skóli muni geta gert með sóma,“ segir Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra.

Smellið hér til að sjá skýrslu stýrihópsins um sameiningu MA og VMA