Fara í efni
Fréttir

L-listinn kynnir nöfn allra frambjóðenda

Sex efstu frambjóðendur L-listans. Frá vinstri: Andri Teitsson, Halla Björk Reynisdóttir, Gunnar Líndal Sigurðsson, Hulda Elma Eysteinsdóttir, Geir Kristinn Aðalsteinsson og Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir.

L-listinn hefur birt nöfn allra sem verða í framboði á hans vegum við bæjarstjórnarkosningunum 14. maí næstkomandi. Áður hafði Akureyri.net sagt frá fjórum efstu, en nýliðar í pólitíkar skipa tvö efstu sætin.

„L-listinn býður fram öflugan hóp af fólki til starfa fyrir bæjarfélagið í sveitastjórnarkosningunum í vor. Þrjú af sex efstu sætum eru skipuð kraftmiklu nýju fólki sem verða studd af reynsluboltum fyrri ára. Eins og alltaf stendur L-listinn fyrst og fremst fyrir hag bæjarbúa og styrkur listans liggur í að virkja gott fólk til góðra verka,“ segir í tilkynningu sem send var út í dag.

„Á síðasta kjörtímabili hefur L-listinn átt frumkvæðið að djörfum breytingum á starfsháttum bæjarstjórnar á erfiðum tímum og við teljum að bæjarfélagið sé að sjá afraksturinn af því nú. Skilyrði til endurbóta og bættrar þjónustu við bæjarbúa eru mun betri en mátti eiga von á og er það samstilltu átaki að þakka. Framboðslistinn fyrir kosningarnar 2022 endurspeglar þá stefnu L-listans að byggja á árangri síðustu ára á sama tíma og nýjum og ferskum hugmyndum er gefið brautargengi.“

Framboðslisti L-listans til sveitastjórnarkosninga árið 2022 er sem hér segir:

  1. Gunnar Líndal Sigurðsson, forstöðumaður
  2. Hulda Elma Eysteinsdóttir, ÍAK einkaþjálfari
  3. Halla Björk Reynisdóttir, bæjarfulltrúi
  4. Andri Teitsson, bæjarfulltrúi
  5. Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir, lífeindafræðingur
  6. Geir Kristinn Aðalsteinsson, mannauðsstjóri
  7. Birna Baldursdóttir, íþróttafræðingur
  8. Jón Þorvaldur Heiðarsson, lektor við HA
  9. Sigríður María Hammer, viðskiptafræðingur
  10. Hjálmar Pálsson, sölumaður
  11. Ýr Aimée Gautadóttir Presburg, nemi í stjórnmálafræði
  12. Víðir Benediktsson, skipstjóri
  13. Ólöf Inga Andrésdóttir, skólastjóri
  14. Arnór Þorri Þorsteinsson, verkefnastjóri
  15. Brynhildur Pétursdóttir, framkvæmdastjóri
  16. Helgi Haraldsson, tæknifræðingur
  17. Anna Fanney Stefánsdóttir, sjúkraliði
  18. Sæbjörg Sylvía Kristjánsdóttir, rekstrarfræðingur
  19. Preben Jón Pétursson, fv. bæjarfulltrúi
  20. Anna Hildur Guðmundsdóttir, fv. bæjarfulltrúi
  21. Matthías Rögnvaldsson, fv. bæjarfulltrúi
  22. Oddur Helgi Halldórsson, fv. bæjarfulltrúi