Fara í efni
Fréttir

Ibrahime Balde er á förum frá Þór

Ibrahime Balde í leik með Þór í fyrrasumar. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Senegalinn Ibrahime Balde, einn besti maður Lengjudeildarinnar í knattspyrnu í fyrra, er á förum frá Þór. Þetta kemur fram í frétt Fótbolta.net í morgun og það hefur nú fengist staðfest. Balde var því ekki meiddur í gær, eins og akureyri.net var talin trú um.

Balde er þrítugur Senegali sem lék framarlega á miðjunni hjá Þór í fyrra. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net var ágreiningur um hvar Balde ætti að spila á vellinum. „Hann hefur spilað sem fremsti maður á undirbúningstímabilinu og var hann ekki hrifinn af því. Sátt náðist ekki um það og því er hann á förum,“ segir í fréttinni.
 

Frétt fotbolta.net: Ibrahime Balde á förum frá Þór