Fara í efni
Fréttir

Í vikunni: grasvígsla, granna- og toppslagur

Nú er fram undan stutt hlé á keppni í Bestu deild karla í knattspyrnu vegna æfingalandsleikja við Skota og Norður-Íra 6. og 10. júní, en næsti leikur KA verður á Ísafirði 15. júní. Það er hins vegar á dagskrá grannaslagur í Lengjudeild karla og fyrsti leikur Þórs/KA eftir landsleikjahléið er á dagskrá á laugardag. Þór/KA á svo auðvitað fulltrúa í A-landsliðinu sem vígir nýtt blendingsgras á Laugardalsvelli á morgun.

ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ – fótbolti

A-landslið Íslands leikur á morgun lokaleik sinn í Þjóðadeild UEFA og á í harðri baráttu við Noreg og Sviss um 2.-4. sæti riðilsins. Frakkar hafa nú þegar tryggt sér sigur í riðlinum. Liðið sem endar í 2. sæti heldur sæti sínu í A-deild, liðið í 3. sæti þarf að fara í umspil um að halda sætinu, en liðið sem endar neðst í riðlinum fellur í B-deild. Nú er Noregur með fimm stig, Ísland fjögur og Sviss tvö. 

  • Þjóðadeild UEFA í knattspyrnu kvenna
    Laugardalsvöllur kl. 18
    Ísland - Frakkland

Á sama tíma og íslenska liðið tekur á móti því franska mætast Sviss og Noregur í Sviss. Ísland gerði jafntefli við Noreg síðastliðinn föstudag og þar var Sandra María Jessen úr Þór/KA í byrjunarliðinu, átti mjög góðan leik og meðal annars góðan þátt í marki Íslands í 1-1 jafntefli. 

MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ – fóbtolti

Völsungur endaði í 2. sæti 2. deildar í fyrrahaust og spilar því í Lengjudeildinni í sumar, eins og Þór. Á miðvikudag er komið að fyrri viðureign þessara liða í sumar og fer leikurinn fram á heimavelli Völsungs á Húsavík. 

  • Lengjudeild karla í knattspyrnu
    PCC-völlurinn á Húsavík kl. 19:15
    Völsungur - Þór

Völsungur er í 8. sæti deildarinnar með sex stig, hefur unnið tvo leiki af fimm. Þór er í 3. sæti með tíu stig, eins og Þróttur, með þrjá sigra, eitt jafntefli og eitt tap.

Þór vann Fylki heima í 5. umferðinni, en Völsungur tapaði 4-1 á útivelli fyrir Þrótti.

LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ – fótbolti

Fyrsti leikur Þórs/KA að loknu landsleikjahléi verður heimsókn til toppliðs deildarinnar, Þróttar, á laugardag. Þróttur tyllti sér í toppsætið með sigri á FHL í 7. umferðinni á meðan Breiðablik tapaði fyrir FH. Þór/KA vann Stjörnuna og er áfram í 4. sætinu. Þróttur, FH og Breiðablik eru í þremur efstu sætunum, en þetta eru einmitt þrír næstu mótherjar Þórs/KA. Fyrst er það útileikur gegn Þrótti í deildinni, þá heimaleikur gegn FH í bikarnum og svo heimaleikur gegn Breiðabliki í deildinni. Það er því óhætt að segja að verkefnin fram undan hjá Þór/KA séu verðug.

  • Besta deild kvenna í knattspyrnu
    AVIS-völlurinn í Laugardal kl. 17
    Þróttur - Þór/KA

Þór/KA vann báðar viðureignir þessara liða í deildarkeppninni í fyrra, 2-1 á heimavelli og 4-2 á útivelli. Liðin gerðu síðan markalaust jafntefli á heimavelli Þróttar í efri hluta deildarinnar í lok keppnistímabilsins.