KA-strákarnir taka á móti Stjörnumönnum

KA-menn gerðu góða ferð til Reykjavíkur á fimmtudaginn þar sem þeir sigruðu Framara 2:1 í Bestu deildinni, efstu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu, og í dag fá KA-strákarnir lið Stjörnunnar í heimsókn. Liðin mætast á Greifavelli KA kl. 17:00.
KA er í áttunda sæti deildarinnar með 11 stig að níu leikjum loknum en Stjarnan í fimmta sæti með 13 stig. Með sigri færi KA því upp fyrir Stjörnuna og yrðu úrslit annarra leikja KA-mönnum einnig hagstæð gætu þeir orðið í fimmta sæti eftir þessa 10. umferð.
- Besta deild karla í knattspyrnu
Greifavöllurinn kl. 17:00
KA - Stjarnan
KA hefur nú unnið tvo leiki í röð. Leikur liðsins er annar og betri en í fyrstu umferðum mótsins. Eftir að Framarar náðu forystu á fimmtudaginn jafnaði Ásgeir Sigurgiersson metin seint í fyrri hálfleik og færeyski landsliðsmaðurinn Jóan Símun Edmundsson tryggði KA þrjú dýrmæt stig í dag með sigurmarkinu í uppbótartíma.
Stjarnan fékk KR-inga í heimsókn í síðustu umferð, á fimmtudaginn, og sigraði 4:2.
KA og Stjarnan hafa mæst 21 sinni í efstu deild Íslandsmótsins. KA hefur oftar haft betur, unnið níu leiki, en Stjarnan sex. Fyrstu viðureignir þessara félaga í efstu deild Íslandsmótsins voru 1990 og unnust báðir leikirnir það árið á útivelli. KA vann 3-1 í Garðabænum, en Stjarnan vann 3-0 á Akureyrarvelli.
Stjarnan vann heimaleik sinn gegn KA í fyrra 5-0, en liðin gerðu síðan 1-1 jafntefli á Akureyri í seinni leiknum.
Fimm leikir eru á dagskrá deildarinnar í dag:
- KR - Vestri 14:00
- KA - Stjarnan 17:00
- FH - Afturelding 18:00
- ÍA - ÍBV 18:00
- Breiðablik - Víkingar 19:15
Umferðinni lýkur annað kvöld:
- Valur - Fram 19:15