Hlýtt en úrkomusamt á Akureyri í október
Nýliðinn októbermánuður var hlýrri en að meðaltali á öllu landinu, en hlýjast var þó á Norðaustur- og Austurlandi. Úrkoma var einnig með mesta móti og heildarúrkoman í mánuðinum á Akureyri var næstum 50% yfir meðallagi. Þetta kemur fram í tíðarfarsyfirliti Veðurstofu Íslands.
Sólskinsstundir á Akureyri voru 62,8, eða 14,9 stundum fleiri en að meðaltali í október. Jörð var alhvít einn morgun mánaðarins, sem er tveimur dögum færra en að jafnaði. Á Akureyri mældist meðalhitinn 4,7 stig, sem er 1,2 stigum yfir meðallagi áranna 1991–2020. Meðalhiti á landsvísu var 5,0 stig, einu stigi yfir meðallagi. Svalast var á suðvesturhluta landsins.
Hæsti hiti mánaðarins mældist á Siglufirði 1. október, 19,5 stig, en mesta frostið mældist í Möðrudal þann 24. október, 17,6 stiga frost.
Úrkoma í október vel yfir meðallagi
Úrkoma var hins vegar vel yfir meðallagi í öllum landshlutum og úrkomudagar margir. Á Akureyri mældist heildarúrkoma mánaðarins 108,4 millimetrar, sem er 47 prósent umfram meðalúrkomu. Úrkoma mældist einn millimetri eða meiri 11 daga í mánuðinum, sem er í meðallagi.
Sé litið til fyrstu tíu mánaða ársins hefur meðalhiti á Akureyri verið 5,3 stig, sem er 0,3 stigum yfir meðallagi áranna 1991–2020. Heildarúrkoma á Akureyri frá janúar til október var 468,9 millimetrar, eða 10 prósent yfir meðallagi.