Hvernig verður veðrið um verslunarmannahelgina?
Konur í sumarkjólum með freyðivín gáfu veðurspánni langt nef og hlupu sér og öðrum til skemmtunar í Kjarnaskógi í gær. En hvað segir veðurspáin fyrir helgina? Kíkjum á það sem sérfræðingar Veðurstofu Íslands höfðu fram að færa í morgunsárið.
- Föstudagur 31. júlí
Norðvestan 8-18 m/sek., hvassast suðaustantil. Súld eða rigning á norðaustanverðu landinu. Annars bjart með köflum, en lítilsháttar rigning á Norðvesturlandi í kvöld og nótt. Hiti 7-18 stig, hlýjast á Suður- og Vesturlandi. - Laugardagur 1. ágúst
Norðan og norðvestan 5-13 m/sek., en 10-15 m/sek. austast. Áfram væta norðan- og austanlands fram eftir degi, síðan úrkomuminna, en bjartviðri í öðrum landshlutum. Hiti 7-18 stig, hlýjast á Suður- og Vesturlandi. - Sunnudagur 2. ágúst
Norðan- og norðvestan 5-13 m/sek. og víða léttskýjað, en skýjað austanlands og með norðurströndinni fram eftir degi. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast á Suðurlandi. - Mánudagur 3. ágúst
Norðvestlæg eða breytileg átt, 3-10 m/sek. og víða bjartviðri en skúrir á stöku stað síðdegis. Hiti víða 8 til 17 stig. - Þriðjudagur, miðvikudagur, fimmtudagur
Hæg breytileg átt, skýjað með köflum og milt veður, en líkur á síðdegisskúrum.
Hugleiðingar veðurfræðings
Með veðurspá fyrir landið næstu daga fylgja hugleiðingar veðurfræðings sem eru svohljóðandi:
Allvíðáttumikil lægð austur austur af landinu veldur stífri norðvestanátt í dag, einkum suðaustan- og austanlands og þar eru hvassar vindhviður við fjöll. Það verður úrkomusamt og fremur svalt á Norðaustur- og Austurlandi en bjart með köflum í öðrum landshlutum og hiti fer í 18 til 20 stig þegar best lætur sunnan- og vestanlands.
Á morgun er útlit fyrir svipað veður, þó dregur úr vætunni seinni partinn og vindur verður ívið hægari en í dag.
Áfram norðlæg átt á sunnudag, gola eða kaldi en strekkingur austast. Víða léttskýjað, en yfirleitt skýjað norðaustantil á landinu. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast sunnan heiða.