Fara í efni
Fréttir

Heill Múmínskógur að rísa í Kjarnaskógi

Nýtt leiksvæði helgað sögupersónum Tove Jansson úr Múmínfjölskyldunni er nú í byggingu í Kjarnarskógi. Heimili Múmínálfanna, blá, sívöl bygging, er nú þegar risið á svæðinu en fleira kennileiti úr Múmíndalnum eiga eftir að bætast við.

„Við erum að endurgera gamalt leiksvæði með það í huga að skapa eitthvað sem höfðar bæði til barna og fullorðinna,“ segir Ingólfur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Eyfirðinga, aðspurður út í hugmyndina að Múmínlandinu sem nú er í smíðum í Kjarnaskógi. „Við vildum bjóða upp á eitthvað sérstakt, eitthvað sem vekur upp ævintýraanda og tengir kynslóðir saman.“

Ákveðið var að hefja verkið á því að reisa stórglæsilegt Múmínhús skammt frá aparólunni og ungbarnaleiksvæðinu með kanínuþemanu sem opnað var árið 2023.

Heimili Múmínálfanna hefur risið í Kjarnaskógi. Fleiri kennileiti úr Múmíndalnum munu bætast við í skógarlundinum í baksýn. 

Heilt Múmínland í byggingu

Frá Múmínhúsinu, sem er há sívöl bygging með rennibraut, er gert ráð fyrir að stígur liggi inn í trjálund við hliðina, en að sögn Ingólfs eru trén þar kræklótt og karaktermikil og tilvalin til að skapa heillandi Múmínheim. Segir Ingólfur að hugsunin sé að gestir gangi inn í sannkallaðan Múmínskóg, í umhverfi sem hentar vel fyrir leik og ímyndunarafl. Til stendur að leggja hringlaga stíg um lundinn þar sem gestir geti upplifað Múmínævintýri í gegnum byggingar sem innblásnar eru af sögum úr Múmíndalnum. Þar verður meðal annars brú, bátur og tjöld sem minna á bústaði sögupersóna úr Múmínævintýrunum. Þá munu persónur á borð við Míu litlu birtast gestum og með hjálp QR-kóða, lifna sögurnar um Múmínálfana við. Verkefnið er unnið í samstarfi við Akureyrarbæ og fleiri aðila og mikil áhersla er lögð á öryggi, náttúrutengingu og að skapa svæði þar sem fjölskyldur, ömmur, afar og barnabörn geta notið saman.


Í sögunum um Múmínálfana eftir Tove Jansson er að finna margar skrautlegar persónur. Mynd; Wikipedia

Múmínálfarnir tengja kynslóðir

Múmínhúsið er nú þegar risið en eftir er að ganga frá umhverfinu í kringum það.  Segir Ingólfur að gestir geti líklega farið að nota það síðar í sumar. Í sumar verður einnig unnið við stígagerð í Múmínlundinum en síðan munu fleiri tæki og upplifanir smátt og smátt bætast við svæðið á næstu misserum, eftir því sem fjárráð leyfa. „Ég ólst sjálfur upp með Múmínálfunum,“ segir Ingólfur sem veit að margir tengja sterkt við þessar frægu sögupersónur. „Og barnabarnið mitt þekkir þessar sögur líka. Þetta skapar tengsl milli kynslóða, að þær geti talað saman í gegnum sögur sem allir þekkja, það er gaman.“