Fréttir
Handbolti: KA tekur á móti ÍBV í kvöld
01.10.2026 kl. 06:00
KA tekur á móti ÍBV í kvöld í Olísdeild karla í handbolta. Mynd: Ármann Hinrik.
Fyrsti handboltaleikur Akureyrarliða í þessari viku er á dagskrá í KA-heimilinu í kvöld þegar KA tekur á móti liði ÍBV.
KA kom sér upp í 2. sæti deildarinnar með útisigri á sjálfum Íslandsmeisturum Vals í 4. umferð Olísdeildar karla. KA hefur sex stig að loknum fjórum leikjum, en Haukar eru á toppnum, eina liðið sem hefur fullt hús stiga. KA er eina liðið með sex stig en önnur lið koma í hnapp þar fyrir neðan.
Heldur KA áfram á sigurbraut þegar Eyjamenn, með nýjan aðalþjálfara, koma norður?
- Handbolti
Olísdeild karla, 5. umferð
KA-heimilið kl. 18
KA - ÍBV
ÍBV er í sjötta sæti deildarinnar með fjögur stig, hefur unnið tvo leiki og tapað tveimur. Eyjamenn máttu játa sig sigraða á síðustu andartökum leiks gegn HK á heimavelli í síðustu umferð, 34-35.