Fara í efni
Fréttir

„Fullt og óskorað traust“ til Heimis

Heimir Örn Árnason í viðtali við Óðin Svan Óðinsson fréttamann RÚV að kvöldi kosningadags á síðasta ári. Sunna Hlín Jóhannesdóttir oddviti Framsóknar á milli þeirra. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Bæjarfulltrúar L-lista, Miðflokks og Sjálfstæðisflokks, sem mynda meirihluta í bæjarstjórn Akureyrar, lýsa yfir „fullu og óskoruðu trausti“ til Heimis Arnar Árnasonar, oddvita Sjálfstæðisflokksins og forseta bæjarstjórnar, „og starfa hans í þágu sveitarfélagsins og bæjarbúa“ eins og segir í yfirlýsingu sem send var út rétt í þessu.

Yfirlýsingin er gefin út í kjölfar þess að Heimir Örn er einn fimmmenninga sem ákærður hefur verið fyrir „líkamsmeiðingar af gáleysi“ vegna fjögurra barna sem slösuðust þegar hoppukastali á Akureyri tókst á loft á frídegi verslunarmanna árið 2021. 

Yfirlýsing frá meirihluta bæjarstjórnar Akureyrar er svohljóðandi:

„Hinn 1. júlí 2021 varð hörmulegt slys í hoppukastala á Akureyri sem kostað hefur ómældar þrautir og þjáningar.

Nú hefur verið lögð fram ákæra á hendur fimm einstaklingum vegna slyssins og þeirra á meðal er forseti bæjarstjórnar Akureyrar, Heimir Örn Árnason. Heimir Örn var á þeim tíma formaður unglingaráðs handknattleiksdeildar KA og KA/Þórs sem var í samstarfi við eigendur hoppukastalans og er ákærður sem slíkur.

Forseti bæjarstjórnar skorast ekki undan ábyrgð á nokkurn hátt en rétt er að undirstrika að Heimir Örn Árnason gegndi engum trúnaðarstörfum fyrir sveitarfélagið þegar slysið átti sér stað. Ákæran fer sína leið fyrir dómstólum og snertir ekki núverandi hlutverk hans innan bæjarstjórnar Akureyrar.

Við undirrituð lýsum yfir fullu og óskoruðu trausti til Heimis Arnar Árnasonar, forseta bæjarstjórnar Akureyrar, og starfa hans í þágu sveitarfélagsins og bæjarbúa.

Akureyri 30. janúar 2023,

Andri Teitsson [L-lista], Halla Björk Reynisdóttir [L-lista], Hlynur Jóhannsson [Miðflokki], Hulda Elma Eysteinsdóttir [L-lista], Lára Halldóra Eiríksdóttir [Sjálfstæðisflokki].“