Fara í efni
Fréttir

Forsetahjónin koma í opinbera heimsókn

Forsetahjónin, Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid, á fundi í Lystigarðinum á Akureyri fyrir forsetakosningarnar árið 2020. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Forsetahjónin, Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid, koma í opinbera heimsókn til Akureyrar 25. og 26. þessa mánaðar og verða gestir á Akureyrarvöku. Þetta verður fyrsta opinbera heimsókn forsetahjónanna til Akureyrar.