Fara í efni
Fréttir

Flugvallarútvarp sett upp á Akureyri

Flugvallarútvarp, sem svo er kallað, var tekið í notkun á Akureyrarflugvelli í dag. Slíkt útvarp, ATIS (Automatic Terminal Information Service), er nú þegar í notkun á Keflavíkur- og Reykjavíkurflugvelli. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Isavia.

Þar segir: Flugvélar sem eiga leið um Akureyrarflugvöll geta fengið upplýsingar um veður, ástand flugvallar og annað með því að hlusta á ATIS á tíðni 136.200 MHZ eða hringja í síma 424 4039 í stað þess að fá upplýsingarnar á tíðni turnsins.

„Þetta eykur enn frekar öryggi flugs á Akureyrarflugvelli,“ segir Sigrún Björk Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri Isavia Innanlandsflugvalla. „Þessi breyting minnkar álagið á tíðni flugturns. Flugumferðarstjórar geta þá einbeitt sér enn frekar að annarri þjónustu eins og til dæmis því að beita aðskilnaði flugvéla þegar þær eru að koma inn á flugvöllinn eða taka á loft frá honum,“ segir Sigrún í tilkynningunni.