Fara í efni
Fréttir

Flokkur fólksins birtir allan listann

Brynjólfur Ingvarsson - Málfríður Þórðardóttir - Jón Hjaltason.

Flokkur fólksins býður nú fram í fyrsta skipti í bæjarstjórnarkosningum á Akureyri. Framboðslistinn var kynntur í dag, en oddviti hans er Brynjólfur Ingvarsson, geðlæknir, eins og Akureyri.net greindi frá í morgun.

Flokkurinn leggur áherslu á málefni eldri borgara, öryrkja og þeirra sem minna mega sín, einnig skipulagsmál, fjármál Akureyrarbæjar, skólamál, íþróttir og listir, eins og segir í tilkynningu. Flokkur fólksins býður fram undir slagorðinu Jöfnuður – Samvinna – Mannúð.

Listinn í heild er sem hér segir:

  1. Brynjólfur Ingvarsson, geðlæknir
  2. Málfríður Þórðardóttir, ljósmóðir
  3. Jón Hjaltason, sagnfræðingur
  4. Hannesína Scheving, bráðahjúkrunarfræðingur
  5. Tinna Guðmundsdóttir, sjúkraliðanemi
  6. Ólöf Lóa Jónsdóttir, eldri borgari
  7. Halla Birgisdóttir Ottesen, forstöðumaður frístundarmála
  8. Arlene Velos Reyers, verkakona
  9. Theódóra Anna Torfadóttir, verslunarkona
  10. Skarphéðinn Birgisson, hárgreiðslumaður
  11. Ásdís Árnadóttir, ferðafræðingur
  12. Jónína Auður Sigurðardóttir, leikskólakennari
  13. Guðrún J. Gunnarsdóttir, húsmóðir
  14. Sigurbjörg G Kristjánsdóttir, fiskverkakona
  15. Margrét Ásgeirsdóttir, leiðbeinandi
  16. Helgi Helgason, málmsuðumaður
  17. Hörður Gunnarsson, sjómaður
  18. Gísli Karl Sigurðsson, eldri borgari
  19. Egill Ingvi Ragnarsson, eldri borgari
  20. Sveinbjörn Smári Herbertsson, iðnfræðingur
  21. Birgir Torfason, sölumaður
  22. Hjörleifur Hallgríms Herbertsson, framkvæmdastjóri og eldri borgari