Fjörugt fram undan en flest lið á útivöllum
Í dag og næstu daga er nóg af íþróttakappleikjum í boði, flestir þeirra þó að heiman. Aðeins einn heimaleikur, mikilvægur leikur Þórs í neðri hluta Bestu deildar karla í knattspyrnu. Þrjú handboltalið, tvö íshokkílið, tvö körfuboltalið, eitt blaklið og eitt fótboltalið verða hins vegar á faraldsfæti í dag og næstu daga.
- Kvennalið KA í blaki hóf keppni í Unbroken-deildinni með 3-0 útisigri gegn Þrótti R./Blakfélagi Hafnarfjarðar og í dag er komið að öðrum útileik, en þó styttra að fara. KA sækir Völsung heim í öðrum leik sínum í deildinni í kvöld.
- KA hefur farið vel af stað í Olísdeildinni í handbolta í haust, situr í 2. sæti deildarinnar með átta stig úr fyrstu fimm leikjunum, tveimur stigum á eftir toppliði Hauka. KA sækir Víking heim í sjöttu umferðinni á föstudag.
- Karlalið Þórs í körfubolta hóf keppni í 1. deildinni um liðna helgi með tapi, líklega gegn sterkasta liði deildarinnar, Þór frá Þorlákshöfn. Á föstudag er komið að útileik gegn Hamri í Hveragerði.
- Lið KA/Þórs hefur ekki náð sér í stig í fyrstu fjórum umferðum Olísdeildar kvenna í handbolta, en vonandi breytist það á föstudagskvöldið þegar KA/Þór sækir Gróttu heim á Seltjarnarnesið í fimmtu umferð mótsins.
- SA Víkingar, karlalið Skautafélags Akureyrar í íshokkí, sækja Fjölni heim í Egilshöllina á föstudagskvöldið í fimmta leik sínum í Toppdeildinni á tímabilinu. Hingað til hefur liðið unnið U20 liðið tvívegis, en tapað bæði fyrir Fjölni og SR á útivelli.
- Senn dregur til tíðinda í Bestu deild karla í knattspyrnu. Akureyrarliðin eru í harðri baráttu við að forðast fall úr deildinni og nú eru níu stig eftir í pottinum. KA sækir Stjörnuna heim í 25. umferðinni, en Þór tekur á móti ÍBV. Valur og Stjarnan hafa nú þegar tryggt sér áframhaldandi sæti í deildinni, en í fjórum neðstu sætunum eru FH með 27 stig, KA með 23, Þór með 21 og ÍBV með 19.
- Bikarkeppnin í handbolta, Powerade-bikarinn, er komin í gang og komið að 16 liða úrslitunum. Lið Þórs heldur til Vestmannaeyja og mætir ÍBV-2 á laugardag.
- Kvennalið SA í íshokkí hefur byrjað tímabilið af krafti og unnið bæði Reykjavíkurliðin einu sinni. Á laugardag er komið að heimsókn í Laugardalinn þar sem búast má við hörkuleik gegn Íslandsmeisturum SR.
- Kvennalið Þórs í körfubolta tapaði naumlega fyrir nöfnum sínum í Þór frá Þorlákshöfn í fyrsta leik sínum í 1. deildinni á tímabilinu. Á sunnudag er komið að heimsókn í Borgarnes, en Skallagrímur teflir nú aftur fram kvennaliði í Íslandsmótinu.
MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER - blak
Annar leikur KA í Unbroken-deild kvenna á tímabilinu.
- Blak
Unbroken-deild kvenna
GPG höllin á Húsavík kl. 19
Völsungur - KA
FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER - handbolti
KA sækir Víkinga heim í sjöttu umferð Olísdeildar karla í handbolta.
- Handbolti
Powerade-bikarinn, 8 liða úrslit
Virkið í Safamýri kl. 19
Víkingur - KA
Eftir stórt tap í fyrstu umferðinni er komið að útileik hjá karlaliði Þórs í körfuboltanum, heimsókn til Hamars í Hveragerði.
- Körfubolti
1. deild karla, 2. umferð
Hveragerði kl. 19:15
Hamar - Þór
KA/Þór þarf sárlega á sigri að halda í Olísdeild kvenna í handbolta. Vonandi krækja þær í sín fyrstu stig á Seltjarnarnesinu.
- Handbolti
Olísdeild kvenna, 5. umferð
Hertz-höllin á Seltjarnarnesi kl. 19:30
Grótta - KA/Þór
Emil Alengård, þjálfari hokkíliða SA, heimsækir sinn gamla vinnustað, skautasvellið í Egilshöllinni, með SA Víkingum.
- Íshokkí
Toppdeild karla
Skautasvellið í Egilshöll kl. 19:45
Fjölnir - SA
LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER - fótbolti, handbolti, Íshokkí
Baráttan við að forðast fall úr Bestu deild karla í knattspyrnu er að ná hámarki.
- Fótbolti
Besta deild karla, 25. umferð, neðri hluti
Samsungvöllurinn í Garðabæ kl. 14
Stjarnan - KA
Heimaleikur Þórs gegn ÍBV í baráttu neðstu liða Bestu deildar karla í knattspyrnu er á dagskrá á laugardag. Svo gæti farið að úrslit leikja laugardagsins þýði að ÍBV falli úr deildinni.
- Fótbolti
Besta deild karla, 25. umferð, neðri hluti
Þórsvöllur (VÍS-völlurinn, gervigras á Ásnum) kl. 14
Þór - ÍBV
Eyjamenn geta verið erfiðir heim að sækja í handboltanum, jafnvel þó liðið heiti ÍBV-2, þar sem vænta má blöndu af reyndum kempum og ungum, sprækum Eyjamönnum.
- Handbolti
Powerade-bikarinn, 8 liða úrslit
Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja kl. 16:30
ÍBV 2 - Þór
Hörkuslagur í boði í Skautahöllinni í Laugardalnum þegar SA sækir lið Íslandsmeistaranna heim.
- Íshokkí
Toppdeild kvenna
Skautahöllin í Laugardal kl. 17:45
SR - SA
SUNNUDAGUR 11. OKBÓTER - körfubolti
Borgarnes er aftur komið á kortið í meistaraflokki kvenna í körfubolta. Kvennalið Þórs sækir Skallagrím heim á sunnudag.
- Körfubolti
1. deild kvenna, 2. umferð
Íþróttamiðstöðin Borgarnesi kl. 16
Skallagrímur - Þór
Stöður í deildum og leikjadagskrár
Blak
Fótbolti
Handbolti
Íshokkí
Körfubolti
Lesendur eru hvattir til að minna á íþróttaviðburði hvers kyns sem fram undan eru í meistaraflokkum, sérstaklega ef eitthvað verður út undan og gleymist í þessari vikulegu yfirferð í vikubyrjun hér á akureyri.net – sendið tölvupóst í haraldur@akureyri.net ef koma þarf slíkum upplýsingum á framfæri.