Fréttir
Fjögur sæti laus í ferð á Liverpool - Man. City
12.01.2026 kl. 20:00
Vegna forfalla eru fjögur sæti laus í ferð sem ferðaskrifstofan TA Sport og akureyri.net bjóða upp í beinu flugi frá Akureyri á leik Liverpool og Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu sem fram fer á Anfield, heimavelli Liverpool, sunnudaginn 8. febrúar.
TA Sport og akureyri.net skipulögðu tvær samskonar ferðir á síðustu leiktíð, aðra á leik Liverpool og Manchester City á Anfield, og voru báðar einstaklega vel heppnaðar.
- ATHUGIÐ – Til að skrá sig í ferðina þarf annað hvort að senda póst á netfangið info@tasport.is eða hringja í síma 552 2018.
- Athygli er vakin á því að sú breyting verður í lok janúar að easyJet flýgur frá Akureyri kl. 21:25 á laugardagskvöldum og vélin lendir í Manchester um miðnætti. Flogið er heim kl. 8:10 á þriðjudagsmorgni og ráðgert að vélin lendi á Akureyri kl. 11.10.
HVAÐ KOSTAR FERÐIN?
- 229.800 kr. á mann, miðað við gistingu í tveggja manna herbergi – Brodies lounge miði, í Anfield Road stúkunni, aftan við markið gegnt Kop stúkunni.
- 249.800 kr. á mann, miðað við gistingu í tveggja manna herbergi – Premier lounge miði, í Kenny Dalglish stúkunni.
- Einbýli kostar 30.000 kr. aukalega.
HVAÐ ER INNIFALIÐ?
- Flug Akureyri - Manchester - Akureyri.
- 15 kg handfarangurstaska og bakpoki eða veski sem kemst undir sæti í flugvélinni.
- Akstur til og frá flugvelli.
- Gisting á 4 stjarna hóteli í miðborg Liverpool með morgunmat.
- Brodies lounge eða Premier Club lounge miði á leikinn. Veitingar innifaldar.
- Íslensk fararstjórn – Skapti Hallgrímsson ritstjóri akureyri.net verður fararstjóri.

Fyrri leikurinn sem hópur á vegum TA Sport og akureyri.net sáu í fyrravetur var viðureign Liverpool og Manchester City 1. desember.