Ferð á leik Liverpool og Everton á Anfield
TA Sport og akureyri.net bjóða upp á hópferð í beinu flugi frá Akureyri á nágrannaslag Liverpool og Everton í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu sem fram fer síðustu helgina janúar.
- Áður hafði verið tilkynnt um eina ferð í vetur, á leik Liverpool og Manchester United á Anfield síðla nóvember mánaðar. Uppselt er í hana fyrir löngu.
Mjög mikil spurn hefur verið eftir ferðum á heimaleiki Liverpool undanfarin ár og svo er enn. Til stendur til að bjóða upp á ferðir á aðra velli eins og áður hefur verið nefnt. Nánar um það síðar.
- Flogið er með easyjet frá Akureyri kl. 9.40 að morgni föstudagsins 29. janúar og lent í Manchester kl. 12.15.
- Flugið heim er frá Manchester að morgni mánudags 1. febrúar. Brottför kl. 6.30 og lent á Akureyri kl. 9.20.
Samkvæmt niðurröðun fer leikur nágrannanna í Bítlaborginni, Liverpool og Everton, fram laugardaginn 30. janúar en ekki er hægt að útiloka að hann verði færður til sunnudags að ósk sjónvarpsstöðva.
- Smellið á þennan hlekk til að bóka ferðina – https://tasport.is/vara/liverpool-everton-29-1-feb-hopferd/
- Fyrstir koma, fyrstir fá – Takmarður fjöldi sæta er í boði í þessa ferð.
HVAÐ KOSTAR FERÐIN?
- Barnagjald, 15 ára og yngri 188.800 – miðað við tvo fullorðna í sama herbergi.
- Frá 208.800 kr. á mann fyrir gistingu í tveggja manna herbergi
- Frá 244.800 kr. fyrir einbýli.
HVAÐ ER INNIFALIÐ?
- Flug með easyjet Akureyri - Manchester - Akureyri, skattar og gjöld.
- 15 kg handfarangurstaska og bakpoki eða veski sem kemst undir sæti í flugvélinni.
- Akstur til og frá flugvelli.
- Gisting og morgunmatur á 4 stjarna hóteli í miðborg Liverpool.
- Premier lounge miði, í Kenny Dalglish stúkunni, eða Brodies lounge miði, í Anfield Road stúkunni, aftan við markið gegnt Kop stúkunni.
- Matur fyrir leik, drykkur í leikhléi. Te og kaffi. Hægt er að kaupa aðra drykki. Opnað 3 klukkustundum fyrir leik.
- Leikskrá.
- Fararstjórn – Skapti Hallgrímsson ritstjóri akureyri.net verður fararstjóri.
Frekari upplýsingar hjá TA Sport í síma 552-2018 eða á info@tasport.is

Útsýni úr Anfield stúkunni; hér sat hluti hópsins sem fór með akureyri.net og TA Sport á leik Liverpool og Manchester City á síðasta keppnistímabil.

Útsýni þaðan sem farþegar TA Sport og akureyri.net sitja í Kenny Dalglish stúkunni.