Fara í efni
Fréttir

Eldvarnarátak hófst í Síðuskóla – MYNDIR

Ljósmyndir: Skapti Hallgrímsson

Mikið gekk á í Síðuskóla í morgun þegar eldvarnarbjalla fór gang og skólinn var rýmdur á svipstundu. Flestir gengu út um dyr eins og þeir eru vanir en vegna þess hvar eldurinn kom upp í húsinu þurftu sumir nemendur að fara út um glugga.

Rétt er að taka fram strax að um æfingu var að ræða – árlegt eldvarnarátak Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) á landsvísu hófst formlega í morgun með heimsókn Slökkviliðs Akureyrar í Síðuskóla.

Slökkviliðsmenn landsins brýna regulega fyrir fólki að efla eldvarnir á heimilunum og mikilvægi eldvarna fyrir öryggi heimilanna var einmitt á meðal þess sem Bjarni Ingimarsson, formaður LSS, ræddi við börn í 3. gekk skólans í morgun. Halla Björk Reynisdóttir, forseti bæjarstjórnar Akureyrarbæjar, ávarpi börnin í byrjun en þau spurðu síðan formanninn spjörunum úr svo úr varð hið skemmtilegasta spjalla.

Slökkviliðið notaði sérstakan búnað til að herma eftir eldi, enginn hætti hér vitaskuld inn á svæðið þar sem eldur varð laus og rýmingar- og björgunaræfingin gekk að öllu leyti vel. Starfsfólk fékk einnig þjálfun í notkun slökkvibúnaðar og þótt börnunum mikið til koma þegar Ólöf Inga Andrésdóttir og fleiri starfsmenn slökktu fagmannlega í eldi sem kveiktur var utandyra.

Í tilkynningu frá LSS segir að slökkviliðsmenn um allt land muni í kjölfar þessa formlega upphafs eldvarnarátaksins þátt í því, en átakið „beinist að því að efla eldvarnir á heimilum til að vernda líf, heilsu og eignir fólks“

Slökkviliðin heimsækja grunnskóla landsins og beina fræðslu um eldvarnir að nemendum í 3. bekk grunnskóla og fjölskyldum þeirra. Lögð er áhersla á að heimili séu búin eldvarnabúnaði á borð við reykskynjara, slökkvitæki og eldvarnateppi:

  • Best er að hafa reykskynjara í öllum rýmum.
  • Slökkvitæki á að vera við helstu flóttaleið.
  • Eldvarnateppi á að vera á sýnilegum stað í eldhúsi.
  • Tryggja þarf öllum á heimilinu að minnsta kosti tvær flóttaleiðir.
  • Allir þekki neyðarnúmerið, 112, líka börnin.
  • Brýnt er fyrir börnunum að fara varlega með kertaljós og annan opinn eld og gæta þess að hlaða snjalltæki og rafhlaupahjól aðeins í öruggu umhverfi.

Börnin fá að sjá teiknimyndina um Loga og Glóð og baráttu þeirra við Brennu-Varg. Þau fá eintak af handbók Eldvarnabandalagsins um eldvarnir heimilisins, endurskinsborða frá Neyðarlínunni, 112, og fleira. Þeim gefst jafnframt kostur á að taka þátt í Eldvarnagetrauninni. Vegleg verðlaun eru í boði og verða þau afhent á 112-deginum, 11. febrúar 2024.

Samkvæmt könnunum sem Gallup hefur gert fyrir Eldvarnabandalagið eru heimilin í landinu mjög misjafnlega vel varin gagnvart eldsvoðum. Almennt sýna kannanir að heimilin efla eldvarnir jafnt og þétt. Frá þessu eru þó mikil frávik:

  • Fólk á aldrinum 25-34 ára er mun ólíklegra en aðrir til að hafa eldvarnateppi og slökkvitæki á heimilinu.
  • Eldvarnir í fjölbýlishúsum eru lakari en almennt gerist og þá sérstaklega í stærri fjölbýlishúsum.
  • Íbúar í leiguhúsnæði eru mun verr búnir undir eldsvoða en aðrir.