Fara í efni
Fréttir

Einar Gauti býður sig fram í 3. sæti hjá VG

Einar Gauti Helgason býður fram krafta sína til þess að skipa 3. sæti í sveitarstjórnarkosningum 2022 á Akureyri fyrir hönd Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs. Forvalið verður rafrænt og stendur frá 2.- 5. mars næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Gauta.

„Ég kláraði sveinspróf árið 2018 og meistaranám í matreiðslu frá Verkmenntaskólanum á Akureyri árið 2020. Námssamningnum lauk ég á veitingastaðnum Bautanum á Akureyri en þar starfaði ég í 11 ár, þar af 3 ár sem yfirmatreiðslumaður og vaktstjóri. Í dag starfa ég sem matreiðslumeistari á Vitanum mathúsi á Akureyri. Ég hef lokið námskeiði hjá Dale Carnegie, diplómagráðu í bjórfræði frá Ölgerðinni ásamt ýmsum námskeiðum frá Iðunni fræðslusetri sem tengjast faggrein minni.

Á kjörtímabilinu hef ég gegnt starfi varafulltrúa í fræðsluráði (núverandi ráð er fræðslu- og lýðheilsuráð). Ég hef verið ritari Svæðisfélags VG Akureyri og nágrennis undanfarið kjörtímabil ásamt því að vera í stjórn UVG á landsvísu. Undanfarin ár hef ég setið í stjórn hverfisnefndar Holta- og Hlíðarhverfis á Akureyri. Fyrir hönd Akureyrarbæjar og Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar Norðurlands eystra sit ég sem varamaður í skólanefnd Verkmenntaskólans á Akureyri. Einnig er ég fulltrúi Akureyrarbæjar á samráðsvettvangi sóknaráætlunar Norðurlands- eystra.

Helstu baráttumál mín eru menntamál, umferðaröryggi, gegnsæ stjórnsýsla auk umhverfis- og skipulagsmál.“