Drónabann við svæði Einnar með öllu
Sett hefur verið um bann við flugi dróna yfir og við hátíðarsvæði Einnar með öllu á Akureyrarvelli um verslunarmannahelgina, frá kl. 12 föstudaginn 31. júlí til kl. 4 aðfaranótt mánudagsins 3. ágúst.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akureyrarbæ og segir að bannið sé sett að beiðni Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra. Þar kemur fram að allt drónaflug sé bannað á umræddu svæði – sem sjá má afmarkað með grænu á myndinni með fréttinni – nema með sérstöku leyfi Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra. Svæðið afmarkast nokkurn veginn af og er innan línu sem dregin er um Oddeyrargötu, Gránufélagsgötu, Glerárgötu, Þórunnarstræti og línu frá Þórunnarstræti yfir í Munkaþverárstræti, yfir að Oddeyrargötu ofan við Amtsbókasafnið.
Vísað er í reglugerð 1360/2024, um starfrækslu ómannaðra loftfara og ómönnuð loftarskerfi, d-lið 3. greinar, sem grundvöll fyrir banninu.
Umræddur reglugerð fjallar um sérstakar takmarkanir á flugi ómannaðra loftfara, en d-liður hljómar svo: „Fylgja skal fyrirmælum, takmörkunum og banni flugumferðarþjónustudeilda, lögreglu, Landhelgisgæslunnar, Samgöngustofu sem og annarra yfirvalda um flug fjarstýrðra loftfara á tilteknum svæðum.“ Ekki kemur þó fram í texta hvaða forsendur lögregla eða önnur yfirvöld þurfa að hafa að grundvelli til þess að setja slíkar takmarkanir.
Hér að neðan má sjá nokkrar drónamyndir Hilmars Friðjónssonar frá verslunarmannahelginni í fyrra, teknar við Akureyrarvöll og í Kjarnaskógi.