Fara í efni
Fréttir

Brynjólfur efstur á lista Flokks fólksins

Flokkur fólksins býður fram lista í kosningum til bæjarstjórnar Akureyri í vor í fyrsta skipti. Brynjólfur Ingvarsson, geðlæknir og eldri borgari, verður í efsta sæti á listanum. Brynjólfur var í þriðja sæti hjá Flokki fólksins við Alþingiskosningarnar á síðasta ári þegar flokkurinn fékk einn mann kjörinn í kjördæminu, Jakob Frímann Magnússon.