Bríet Fjóla átti þátt í 2 mörkum gegn Serbíu
Þór/KA átti tvo fulltrúa í U17 landsliði kvenna sem tók þátt í undankeppni EM undanfarna rúma viku, Bríeti Fjólu Bjarnadóttur og Karen Huldu Hrafnsdóttur. Spilað var í Serbíu.
Íslenska liðið tapaði 1-2 fyrir því franska í fyrsta leik, síðan 0-1 á móti Austurríki, en það var loks í þriðja og síðasta leiknum sem sigurinn kom og þá var hann stór, 5-0 gegn gestgjöfunum í Serbíu. Niðurstaðan varð 3. sæti riðilsins. Frakkland og Austurríki luku leik með sex stig, en Ísland og Serbía með þrjú.
Bríet Fjóla var varamaður í fyrsta leiknum og spilaði síðasta hálftímann, en síðan í byrjunarliðinu í leikjunum gegn Austurríki og Serbíu. Karen Hulda kom ekki við sögu í leikjum liðsins. Bríet Fjóla átti þátt í tveimur síðustu mörkum íslenska liðsins í sigrinum á Serbíu, eins og sjá má í spilurunum hér að neðan. Leikinn í heild er hægt að horfa á hér.