Fara í efni
Fréttir

Öryggi leikmanna aldrei samningsatriði

Kvennalið Þórs þjappar sér saman fyrir fyrri og reyndar eina leik liðsins gegn Selfyssingum á leiktíðinni. Stjórnin leggur áherslu á að öryggi leikmanna verði aldrei samningsatriði. Mynd: Guðjón Andri Gylfason.

Guðjón Andri Gylfason, formaður körfuknattleiksdeildar Þórs, birti yfirlýsingu nú í kvöld fyrir hönd stjórnarinnar. Þar eru raktar ástæður þess að stjórnin ákvað að senda kvennalið félagsins ekki af stað suður til að mæta Selfyssingum í leik liðanna í 1. deild sem átti að hefjast kl. 19:15. „Öryggi leikmanna verður aldrei samningsatriði,“ segir í lok yfirlýsingarinnar.

  • Frétt akureyri.net fyrr í dag:

Öryggið í efsta sæti – Ósigur og sekt?


Vel ígrunduð ákvörðun

„Ákvörðunin var tekin að vel ígrunduðu máli, með öryggi leikmanna, þjálfara og annarra sem hefðu þurft að ferðast sem algjöran forgang,“ segir í inngangi yfirlýsingarinnar. Bent er á að á leikdegi hafi veðuraðstæður verið með versta móti á fyrirhugaðri leið liðsins, þ.e. frá Akureyri til Selfoss. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands og Vegagerðinni hafi vindhraði víða verið á bilinu 25-35 metrar á sekúndu. Með yfirlýsingunni fylgja tvær myndir frá áðurnefndum stofnunum sem sýna aðstæður í dag.

„Slíkar aðstæður teljast hættulegar til ferðalaga, sérstaklega þegar um er að ræða langan akstur yfir heiðar og fjallvegi þar sem veður getur breyst hratt og akstursskilyrði versnað á skömmum tíma.“ Bent er á að Öxnadalsheiðin hafi verið lokuð fram undir kl. 10 í morgun og Holtavörðuheiði hafi ekki verið opnuð fyrr en um 11:30. En áhersla er lögð á að það segi ekki alla söguna.

Þrátt fyrir að hitastig væri víða nálægt frostmarki og vegir að mestu blautir á láglendi, var hálka á fjallvegum og miklar vindhviður alla leiðina, sem gerðu akstur ótryggan. Veðurspár bentu jafnframt til þess að vindur myndi haldast svipaður yfir daginn og því vægast sagt ekkert ferðaveður. Í ljósi þessa var það einróma mat stjórnar að ekki væri forsvaranlegt að leggja af stað í slíkar aðstæður.

Ábyrgð stjórnarmanna að taka skýra afstöðu

Stjórn körfuknattleiksdeildar leggur áherslu á að ábyrgð stjórnarmanna gagnvart leikmönnum feli í sér að taka skýra afstöðu þegar raunveruleg hætta gæti skapast. Sú skylda vegur þyngra en keppnisdagar eða tímasetningar í mótadagatali sambandsins,“ segir í yfirlýsingunni.

Körfuknattleikssamband Íslands hafi hins vegar metið stöðuna með öðrum hætti og vísað til þess að vegir væru formlega opnir og því bæri liðinu að mæta til leiks. Jafnframt hafi verið bent á að dagatal keppninnar væri orðið þröngt og að erfitt gæti reynst að finna nýjan leiktíma síðar.

Áhugavert er í því sambandi að á morgun, föstudaginn 20. mars, á karlalið Þórs að mæta Selfyssingum í lokaumferð 1. deildarinnar. Boðið var upp á þann möguleika að bæði Þórsliðin spiluðu á Selfossi á morgun, en samkvæmt heimildum akureyri.net var því hafnað af KKÍ án samráðs við Selfyssinga. Það skondna við þann mögulega tvíhöfða er að Selfossliðin mættu einmitt bæði saman norður fyrr á tímabilinu og spiluðu sama daginn við Þórsliðin.

Karlalið Þórs sækir Selfyssinga heim annað kvöld. Tvíhöfði á Selfossi sem lausn við ferðavanda dagsins í dag var afþakkaður af sambandinu án samráðs við Selfyssinga. Mynd: Guðjón Andri Gylfason. 

Í yfirlýsingu stjórnarinnar kemur fram að í samtölum við formann sambandsins hafi komið fram vilji til að skoða málið nánar og hafa samband aftur, en slíkt samtal hafi ekki borist. Þess í stað hafi framkvæmdastjóri sambandsins haft samband og einfaldlega tilkynnt að leikurinn yrði spilaður eða væri á dagskrá og að félagið þyrfti að taka afleiðingum þess að mæta ekki. „Ekki var mögulegt að ræða málið frekar eða leita sameiginlegrar lausnar í því samtali,“ segir í yfirlýsingu Þórsara.

Snýst ekki aðeins um einn leik

Stjórn körfuknattleiksdeildar Þórs bendir á og undirstrikar að málið snúist ekki einungis um einn leik eða eina ákvörðun. „Það snýst einnig um stöðu félaga á landsbyggðinni og þær sérstöku áskoranir sem fylgja því að taka þátt í Íslandsmótum þar sem langar og krefjandi ferðir eru óumflýjanlegur hluti af starfseminni. Félög utan höfuðborgarsvæðisins þurfa ítrekað að ferðast við erfiðar aðstæður, yfir fjallvegi og heiðar þar sem veður getur verið bæði óútreiknanlegt og hættulegt. Þetta er raunveruleiki sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar þekkja vel og bera oft þungan kostnað og áhættu vegna.“ Því sé mikilvægt að stjórnvöld í íþróttahreyfingunni, mótshaldarar og Körfuknattleikssambandið sýni skilning á þessum veruleika og taki mið af honum við ákvarðanatöku.

„Þegar einungis er horft til þess hvort vegur sé „opinn“ á korti en ekki til raunverulegra veðuraðstæðna, hættu og ábyrgðar gagnvart fólki, skapast hætta á að öryggi sé sett til hliðar. Við teljum að íþróttir eigi að sameina landið, ekki skapa aðstæður þar sem félög á landsbyggðinni standa frammi fyrir sífelldum þrýstingi um að taka áhættu sem önnur félög þurfa sjaldnar að horfast í augu við.“ Umræður um mótaskrár og þétt dagatal megi ekki leiða til þess að sveigjanleiki og skynsemi víki fyrir formfestu.

Harma viðbrögð sambandsins

„Það hlýtur að vera sameiginlegt markmið okkar allra að tryggja að keppni fari fram við aðstæður sem eru bæði sanngjarnar og öruggar. Þegar veðurfar og aðstæður eru með þeim hætti sem raun ber vitni þarf að vera raunhæft svigrúm til að fresta leikjum eða finna aðrar lausnir,“ segir í yfirlýsingu stjórnarinnar. 

Chloe Wilson er oftast stigahæst í Þórsliðinu og lætur fátt stöðva sig. Það voru þó ekki varnarmenn Selfyssinga sem stöðvuðu Chloe og liðsfélagana í dag, heldur skynsemin og öryggissjónarmið stjórnar deildarinnar. Mynd: Guðjón Andri Gylfason.

Stjórn körfuknattleiksdeildar Þórs harmar þau viðbrögð sem við fengum í þessu máli og það sem við upplifum sem algeran skort á skilningi á alvarleika aðstæðna og ábyrgð gagnvart öryggi leikmanna. Við stöndum engu að síður heilshugar við þá ákvörðun sem tekin var. Þó hún kunni að hafa í för með sér afleiðingar fyrir félagið erum við sannfærð um að hún hafi verið rétt og nauðsynleg miðað við þær aðstæður sem uppi voru.

Öryggi leikmanna verður aldrei samningsatriði.

Kostar dæmda tapið aukaferð suður?

Það er síðan áhugavert að velta fyrir sér stöðunni í 1. deild kvenna ef gengið er út frá því að leikur kvöldsins teljist tapaður hjá Þórsliðinu. Aþena er í efsta sæti deildarinnar og hefur þegar tryggt sér sæti í Bónusdeildinni á næsta tímabili. Fjögur lið fara í umspil, liðið í 9. sæti Bónusdeildarinnar (sem er Hamar/Þór eins og staðan er núna) og liðin í 2.-4. sæti 1. deildar, sem eru Fjölnir, Þór og Selfoss. Fjölnir hefur lokið sínum leikjum og er með 15 sigra. Þór er í 2. sæti með 13 sigra og á eftir að mæta Vestra og Snæfelli á heimavelli, á sunnudag og þriðjudag.

Eins og staðan er í deildinni, og með dæmdu tapi á Selfossi, þarf Þór sigur gegn Vestra og Snæfelli í tveimur síðustu leikjum sínum til að enda í 2. sæti deildarinnar. Með betri árangri í innbyrðis viðureignum við Fjölni myndi Þór ná 2. sætinu ef liðin enda jöfn. Nái Þór ekki að vinna báða leikina sem eftir eru má segja að þessi dæmdi ósigur á Selfossi í kvöld hafi þau áhrif að Þórsliðið þurfi að ferðast oftar suður yfir heiðar en ella, því ef Fjölnir endar í 2. sætinu og Þór í 3. sæti á Fjölnir oddaleiksréttinn gegn Þór í umspilsleikjunum, ef til þess kemur. Í stað tveggja til þriggja heimaleikja koma þá tveir til þrír útileikir hjá Þórsliðinu í undanúrslitum umspilsins.