Úrslitarimma í íshokkí og tvær deildir klárast
Líður að lokum. Síðasta umferð Olísdeildar kvenna í handbolta er á dagskránni í dag, lokaspretturinn í Toppdeild kvenna í íshokkí hefst með fyrsta leik SA og SR í úrslitum og lið Þórs kemst vonandi á Selfoss til að spila leik sinn í lokaumferð 1. deildar karla í körfubolta.
Lítil spenna í handboltanum hjá konunum, flest sæti ráðin þar. Spennan magnast hjá konunum í íshokkíinu og von Skautafélags Akureyrar um titla í meistaraflokki hvílir nú á kvennaliðinu. Og svo er spenna í botnbaráttunni í 1. deild karla í körfubolta.
Olísdeild kvenna að klárast
KA/Þór leikur lokaleik sinn í Olísdeildinni þetta árið í dag þegar liðið sækir Fram heim í Úlfarsárdalinn. Það eina sem er óráðið í röð liðanna í töflunni fyrir lokaumferðina eru tvö neðstu sætin, en þar sitja Selfoss og Stjarnan, bæði með sex stig. Ljóst er að KA/Þór endar í 6. sæti deildarinnar og mætir Haukum, sem eru og verða í 3. sætinu, í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.
- Olísdeild kvenna í handbolta
Lambhagahöllin í Úlfarsárdal kl. 14:00
Fram - KA/Þór - Útsending: Handboltapassinn í Sjónvarpi Símans
Áskriftarsjónvarp
Báðir leikir þessara liða í vetur hafa verið hnífjafnir og unnust báðir með eins marks mun á útivelli. KA/Þór vann Fram fyrir sunnan í október, 30-29, en tapaði heimaleiknum í janúar, 20-21.
Úrslitaeinvígi kvenna í íshokkí að hefjast
Í dag er komið að úrslitakeppni Toppdeildar kvenna í íshokkí. Þar mætast lið Skautafélags Akureyrar og Skautafélags Reykjavíkur. Lið SA er deildarmeistari, vann Toppdeildina með yfirburðum, endaði með 42 stig, en SR kom næst með 26 stig.
SA vann 15 leiki af 16 í deildinni í vetur, þar af þrjá í framlengingu og/eða vítakeppni. Liðið tapaði aðeins einum leik, en það var á móti SR í Laugardalnum í febrúar. Af átta viðureignum SA og SR í vetur fóru tvær í framlengingu og önnur þeirra áfram í vítakeppni, og vann SA í bæði skiptin.
- Toppdeild kvenna í íshokkí
úrslitakeppni, leikur 1
Skautahöllin á Akureyri kl. 16:45
SA - SR - Útsending: icehockeyiceland.tv
Áskrift að rás eða stökum leikjum
Frestaður leikur sem breytir engu
Leikur karlaliðs Þórs í körfubolta í lokaumferð 1. deildarinnar er á dagskrá í kvöld, en honum var frestað í gær eins og fram hefur komið í fréttum. Eftir úrslit annarra leikja í lokaumferðinni, sem allir voru spilaðir í gær, skiptir leikur Selfoss og Þórs afar litlu máli. Þór er ekki lengur í fallhættu eftir að Hamar tapaði fyrir Snæfelli í gær. Fylkir vann Breiðablik, sem þýðir að Hamar fellur í 2. deild. Þór og Fylkir hafa bæði unnið fjóra leiki og eru í 10. og 11. sæti deildarinnar, fara því ekki í umspil um laust sæti í Bónusdeildinni.
Fyrir Selfyssinga skiptir sigur ekki heldur máli upp á röðun í sæti, þeir hafa unnið níu leiki og eru í 8. sætinu. KV er sæti ofar með tíu sigra, en það nægir Selfyssingum ekki að ná KV vegna lakari árangurs í innbyrðis viðureignum.
- 1. deild karla í körfubolta
Vallaskóli á Selfossi kl. 19:30
Selfoss - Þór - Útsending: SÝN KKÍ TV1
Áskriftarsjónvarp
Þór tapaði fyrri viðureigninni við Selfyssinga í vetur með sex stiga mun, 75-81, á Akureyri.
Höttur á Egilsstöðum tryggði sér í gærkvöld deildarmeistaratitilinn og sæti í Bónusdeildinni á næsta tímabili. Röð liðanna er þessi: 1. Höttur, 2., Sindri, 3. Haukar, 4. Fjölnir, 5. Breiðablik, 6. Skallagrímur, 7. KV, 8., Selfoss, 9. Snæfell, 10. Þór, 11. Fylkir, 12. Hamar.
Liðin í 2.-9. sæti fara í umspil um annað laust sæti í Bónusdeildinni, Singri og Snæfell eigast við, Haukar og Selfoss, Fjölnir og KV, og Breiðablik og Skallagrímur.