Fara í efni
Fréttir

Blak: Kornungt lið KA en samt með reynslu

Fyrsti bikarinn er kominn í safnið hjá kvennaliði KA á þessu tímabili. Liðið vann HK í leik um titilinn Meistarar meistaranna.

Blakvertíðin er hafin fyrir nokkru og tímabært að kynnast kvennaliði KA, sem leikur fyrstu heimaleikina í Unbroken-deildinni um helgina.

Fyrsti bikarinn á tímabilinu er reyndar þegar kominn í hús því KA vann Íslands- og bikarmeistara HK í leiknum um titilinn meistarar meistaranna í upphafi tímabilsins. KA tekur á móti liði HK/Ýmis í dag og á morgun og eru það fyrstu heimaleikir liðsins á leiktíðinni. Hér er ekki um Íslandsmeistarana að ræða heldur lið númer tvö úr Kópavoginum, ungmennalið undir merkjum HK/Ýmis.

  • Laugardagur 17. október
    Unbroken-deild kvenna
    KA-heimilið kl. 13:30
    KA - HK/Ýmir
  • Sunnudagur 18. október
    Unbroken-deild kvenna
    KA-heimilið kl. 14:00
    KA - HK/Ýmir

Fyrirliðinn og þjálfarinn. Lucia Martin og Miguel Mateo.

Nokkrar breytingar hafa átt sér stað, reyndir leikmenn hafa ýmist farið annað að spila eða snúið sér að öðrum verkefnum og þjálfarinn, Miguel Mateo, því með mjög ungan hóp í höndunum, en hann kvíðir þó ekki vetrinum, hefur fulla trú á ungum leikmönnum sem hafa nú þegar öðlast mikla reynslu. Paula del Olmo kemur aftur inn og spilar í vetur eftir barnsburðarleyfi á síðasta tímabili, en á móti fer landa hennar, Julia Bonet, ein af þeim bestu í deildinni undanfarin ár í frí þar sem hún er barnshafandi. 

Mikilvægar í liði KA, komnar og farnar. Julia Bonet verður ekki með í vetur þar sem hún er barnshafandi, Paula del Olmo er komin aftur á völlinn eftir barnsburðarleyfi og Jóna Fanney Arnarsdóttir er farin aftur til Spánar eftir eitt ár í endurkomunni hjá KA.

Meðalaldurinn innan við tvítugt

KA-lðið er mjög ungt, flestar í liðinu fæddar á árunum 2008-2010. Meðalaldur leikmanna KA sem á lista á vef Blaksambands Íslands er rétt innan við 20 ár, en sú næstelsta verður ekki með og fer meðalaldurinn því niður undir 19 árin.

Miguel kveðst stoltur af ungu liði KA og hefur fulla trú á liðinu þó svo breytingar sem hafa orðið á hópnum hafi lækkað meðalaldurinn töluvert. „Í stað Lovísu og Auðar á miðjunni spila Sveinbjörg og Þórhildur og þær eru að spila mjög vel. Þær voru á varamannabekknum á síðustu leiktíð, en taka núna skref fram á við og eru að spila mjög vel á miðjunni. Paula er líka komin aftur, sem er mjög gott, en Julia verður ekki með í vetur.  Hópurinn er því mun yngri en áður, en liðið hefur verið að spila virkilega vel og það er mikill hugur í hópnum,“ segir hann um hópinn sem hann hefur í höndunum.

Þrjár ungar komnar inn í meistaraflokkinn hjá KA. Inga Björg Brynjólfsdóttir frá Völsungi, Kristey Marín Hallsdóttir til baka úr láni hjá Völsungi og Matthildur Unnur Úlfarsdóttir úr yngri flokkum KA. 

Væntingarnar eru áfram eins og áður um góðan árangur og að liðið berjist um titla þó svo hópurinn hafi yngst nokkuð. „Það var dálítið spurningamerki hvernig liðið myndi standa sig, margar ungar í liðinu og núna þegar Julia er ekki með erum við með lið með meðalaldur um 19 ára, svakalega ungt lið. En liðið stendur sig virkilega vel og þær eru allar að spila eins og þær séu 25 ára. Ég er mjög ánægður með liðið, þær æfa mjög vel og leggja mikið á sig. Þær eru með reynslu þó þær séu ungar og ég er mjög stoltur af liðinu.“ 

Góð byrjun 

Keppni í Unbroken-deild kvenna er komin af stað og liðin sem búist er við að verði í toppbaráttunni hafa nú þegar raðað sér í efstu sætin. KA hefur unnið tvo fyrstu leiki sína án þess að tapa hrinu og er í efsta sætinu með sex stig. HK hefur einnig sex stig, en hefur tapað tveimur hrinum.

Mateo telur KA, HK og Aftureldingu verða í toppbaráttunni. HK er Íslands- og bikarmeistari, en er með veikara lið en í fyrra að hans mati. Tvær af þremur systrum sem hafa verið mikilvægar í liði HK eru farnar annað. KA vann HK í leiknum um titilinn Meistarar meistaranna í upphafi leiktíðar svo vonandi gefur það tóninn fyrir veturinn. Afturelding verður einnig með sterkt lið og í toppbaráttu að hans mati. Þróttur Fjarðabyggð hefur líka styrkt sig og verður með samkeppnishæft lið í vetur, hefur fengið nýja leikmenn, þar á meðal sterkan bandarískan leikmann frá Völsungi.

Leikmenn KA

  • 1 Fanney Karlsdóttir – frelsingi (Libero)
  • 3 Sveinbjörg Lilja Ingólfsdóttir – miðja (Middle-blocker)
  • 4 Sunna Bríet Búadóttir – frelsingi (Libero)
  • 5 Paula Del Olmo Gomez – kantur (Wing-spiker)
  • 6 Inga Björg Brynjúlfsdóttir – kantur (Wing-spiker)
  • 7 Julia Bonet Carreras – kantur (Wing-spiker)
  • 9 Sóldís Júlía Sigurpálsdóttir – kantur (Wing-spiker)
  • 10 Matthildur Unnur Úlfarsdóttir – miðja (Middle-blocker)
  • 11 Katla Fönn Valsdóttir – kantur (Wing-spiker)
  • 12 Rakel Hólmgeirsdóttir – frelsingi (Libero)
  • 14 Þórhildur Lilja Einarsdóttir – miðja (Middle-blocker)
  • 15 Anika Snædís Gautadóttir – kantur (Wing-spiker)
  • 17 Kristey Marín Hallsdóttir – uppspilari (Setter)
  • 18 Kara Margrét Árnadóttir – uppspilari (Setter)
  • 19 Lucia Martin Carrasco – díó og fyrirliði (Opposite)

Komnar

  • Inga Björg Brynjólfsdóttir - frá Völsungi
  • Matthildur Unnur Úlfarsdóttir - úr yngri flokkum
  • Kristey Marín Hallsdóttir - til baka úr láni hjá Völsungi
  • Rakel Hólmgeirsdóttir - komin aftur eftir hlé

Farnar

  • Arnrún Eik Guðmundsdóttir - hætt
  • Auður Pétursdóttir - í Völsung
  • Jóna Margrét Arnarsdóttir - til Spánar
  • Lilja Kristín Ágústsdóttir - til Bandaríkjanna
  • Lovísa Rut Aðalsteinsdóttir - í nám til Ítalíu
  • Valdís Kapitola Þorvarðardóttir - hætt

Fjölmörg lið undir merkjum KA

Blakliðin sem spila undir merkjum KA eru fleiri en bara liðið sem spilar í efstu deild, Unbroken-deildinni. Spilað er í átta deildum kvenna og þar eru samtals tíu lið sem spila undir merkjum KA. Karlarnir eru einnig með tvö lið í neðri deildum, KA splæsir og KA-u í 2. deild.

  • 2. deild: KA Krákur, KA Freyjur, KA Skautar A
  • 3. deild: KA Skautar B, KA Skutlur/Eik A
  • 5. deild: KA Freyjur B
  • 6. deild: KA Krákur B, KA Skutlur/Eik B
  • 7. deild: KA Kötlur
  • 8. deild: KA Stellur