Fréttir
Meistaraslagir í blaki og íshokkí á dagskránni
03.10.2026 kl. 06:00
Fyrsti heimaleikur karlaliðs KA í blaki er á dagskrá í dag og hann ekki af verri gerðinni. Þar mætast Íslands- og deildarmeistarar síðasta tímabils þegar KA tekur á móti liði Hamars úr Hveragerði. Leik dagsins í íshokkí mætti einnig kalla meistaraslag því SA Víkingar sækja Íslandsmeistara SR heim í fjórða leik sínum í Toppdeildinni.
- Blaklið KA í Unbroken-deild karla í blaki tapaði fyrir Þrótti í Reykjavík í fyrstu umferðinni, en nú er komið að heimaleik gegn deildarmeisturum síðasta árs. Þegar upp var staðið í vor voru það hins vegar KA-menn sem unnu Íslandsmeistaratitilinn eftir að hafa lent í 2. sæti í deildinni. Nánar er fjallað um blaklið KA í sér upphitunarpistli síðar í dag.
- Erkifjendur takast á í Skautahöllinni í Laugardal í kvöl þegar SA Víkingar sækja Íslands- og deildarmeistara Skautafélags Reykjavíkur heim. SA Víkingar hafa unnið tvo af fyrstu þremur leikjum sínum, töpuðu fyrir Fjölni í fyrsta leik, en unnu síðan tvo örugga sigra gegn U20 liðinu. SR hefur unnið báða leiki sína til þessa, fyrst gegn U20 liðinu og síðan Fjölni núna fyrr í vikunni.
Hörkuslagur í boði í KA-heimilinu á laugardag þegar Íslandsmeistarar KA taka á móti deildarmeisturum Hamars í fyrri viðureign þessara liða um helgina.
- Blak
Unbroken-deild karla
KA-heimilið kl. 18
KA - Hamar
Slagur Íslandsmeistara og deildarmeistara í íshokkí í boði syðra á laugardag. SA Víkingar sækja SR-inga heim.
- Íshokkí
Toppdeild karla
Skautahöllin í Laugardal kl. 17:45
SR - SA