Fara í efni
Fréttir

Bæjaryfirvöld: ráðist verði í úrbætur á Hlíð hið fyrsta

Akureyrarbær „mun leggja fram verkáætlun um úrbætur og bregðast við af ábyrgð og festu,“ segir í tilkynningu frá sveitarfélaginu vegna bréfs frá Slökkviliði Akureyrar sem dagsett er 4. febrúar, „þar sem fram kemur að eldvörnum í húseigninni að Austurbyggð 17 sé verulega ábótavant.“

Akureyri.net greindi frá því fyrr í dag að slökkviliðið hafi varað bæjaryfirvöld við yfirvofandi lokun Austurbyggðar 17 – þar sem dvalarheimilið Hlíð er til húsa – vegna ágalla á eldvörnum í húsnæðinu. Í bréfi frá Heilsuvernd, sem tók við rekstri öldrunarheimilisins fyrir ríkið á síðasta ári, segir að lokun húsnæðisins yfirvofandi verði ekki brugðist við fyrir 25. febrúar.

„Ráðast þarf í úrbætur hið fyrsta og fá skriflega staðfestingu heilbrigðisráðuneytisins um kostnaðarþátttöku ríkisins,“ segir ennfremur í tilkynningu frá Akureyrarbæ á vef sveitarfélagsins.

Ríkið ráðstafaði húseignum bæjarins til þriðja aðila

Í tilkynningunni á vef Akureyrarbæjar segir einnig:

„Húsnæðið að Austurbyggð 17 er að mestu skráð í eigu Akureyrarbæjar en þar rekur Heilsuvernd ehf. hjúkrunarheimili í umboði Sjúkratrygginga Íslands og heilbrigðisráðuneytisins. Hefðbundin kostnaðarskipting við meiriháttar viðhald og endurbætur húsnæðis af þessu tagi er sú að sveitarfélag standi straum af 15% kostnaðar en ríkið 85%. Samkvæmt samkomulagi Heilsuverndar ehf. við Sjúkratryggingar Íslands greiðir fyrirtækið ekki leigu af húsnæðinu en fær greitt svokallað húsnæðisgjald til að standa undir rekstri húsnæðisins og almennu viðhaldi. Sjúkratryggingar Íslands og heilbrigðisráðuneytið hafa þannig ráðstafað húseignum Akureyrarbæjar til þriðja aðila án þess að á móti komi leigugreiðslur til sveitarfélagsins.“

Bæjarráð Akureyrar fjallaði um málið á fundi sínum í morgun og samþykkti eftirfarandi bókun:

„Bæjarráð lítur ábendingar í eldvarnaskoðun slökkviliðsins alvarlegum augum og áréttar að við þeim verður brugðist án tafar. Um leið er gerð sú skilyrðislausa krafa að ríkið og/eða Heilsuvernd ehf. greiði kostnaðinn við þau verk sem þarf að vinna. Ótækt er að Akureyrarbær beri einn kostnað af óhjákvæmilegu viðhaldi og nauðsynlegum endurbótum á húseignum sem ríkið hefur afhent þriðja aðila til ráðstöfunar endurgjaldslaust án samráðs við Akureyrarbæ sem er skráður eigandi húsnæðisins. Er bæjarstjóra jafnframt falið að kanna lagalega stöðu Akureyrarbæjar varðandi eignarhald á húsinu.“

Hóta að loka Hlíð vegna ófullnægjandi brunavarna

Heilsuvernd: brunavarnir í ólagi 2019 og ástandið eins nú – bærinn komi þeim í lag