Fara í efni
Þór

Svíinn Samuel Kroon til liðs við KA

Svíinn Samuel Kroon hefur samið við knattspyrnudeild KA. Mynd: ka.is.

Knattspyrnudeild KA hefur samið við sænska leikmanninn Samuel Kroon til næstu tveggja ára. Kroon er 29 ára gamall og kemur til félagsins frá sænska liðinu Örebro. Föstudagurinn þrettándi virðist vera happadagur hjá KA því félagið hefur í dag tilkynnt um komu tveggja nýrra leikmanna karlaliðsins í knattspyrnu, því fyrr í dag gekk Danijel Dejan Djuric einnig til liðs við félagið.

Kroon er fjölhæfur leikmaður sem getur bæði leikið sem kantmaður og bakvörður. Hann hefur leikið með Örebro frá árinu 2023 og á þeim tíma spilað 71 leik fyrir félagið og skorað níu mörk. Flesta þessara leikja lék hann í næstefstu deildinni í Svíþjóð, Superettan-deildinni.

Áður en Kroon gekk til liðs við Örebro lék hann í efstu deild sænsku knattspyrnunnar, Allsvenskan, með liðunum IF Brommapojkarna og Halmstads BK. Þá hefur hann einnig spilað með Umeå FC, Nyköpings BIS og Bele Barkarby FF á ferli sínum.

Eftir því sem fram kemur í frétt á vefsíðu KA eru vonir bundnar við að reynsla og fjölhæfni Kroon muni styrkja liðið fyrir komandi verkefni. Fyrsti leikur KA í Bestu deildinni í sumar verður leikinn 12. apríl þegar liðið tekur á móti Stjörnunni á Greifavellinum.