Fara í efni
Þór

Einstefna að hluta í Skarðshlíð og Dalsbraut

Einstefna í hluta Skarðshlíðar og Dalsbrautar næstu daga vegna fjölsóttra íþróttaviðburða.

Næstu dagar eru miklir íþróttadagar á Akureyri, nokkur stórmót og aðrir viðburðir á dagskrá á Þórssvæðinu, KA-svæðinu, Íþróttahöllinni, Þórsvellinum, götum bæjarins og í Skautahöllinni.

Á Facebook-síðu Öldungs 2026, blakmótsins sem haldið verður í Boganum og KA-heimilinu, er tilkynnt um breytingar á umferð um hluta Skarðshlíðar og Dalsbrautar, í samvinnu við Akureyrarbæ.

Fimmtudag, föstudag, laugardag og sunnudag, 30. apríl til 2. maí, verður hluta af þessum götum breytt í bílastæði og um leið einstefnugötur, Skarðshlíð alla fjóra dagana, en Dalsbraut aðeins á laugardag.

  • Skarðshlíð - einstefna frá Smárahlíð niður götuna að Undirhlíð, nema fyrir strætisvagna.
  • Dalsbraut - einstefna á laugardag, suður frá KA-svæðinu að hringtorgi við Skógarlund.

Mótsstjórn Öldungs hefur að auki hvatt þátttakendur og gesti til að gera sitt til að létta á umferð um umrædd svæði, til dæmis að sameinast í bíla, notast við leigubíla, hlaupahjól og reiðhjól, eða ganga á mótssvæðin.