Þór
Bikarinn: Þór/KA gegn Stjörnunni á heimavelli
28.04.2026 kl. 12:25
Bríet Jóhannesdóttir, Arna Sif Ásgrímsdóttir, Bríet Fjóla Bjarnadóttir og markvörðurinn Allesandra Doherty Augur í fyrsta deildarleik sumarsins gegn FH um síðustu helgi. Þær mæta Stjörnunni í 16-liða úrslitum bikarkeppninnar. Mynd: Ármann Hinrik
Þór/KA mætir Stjörnunni á heimavelli í 16-liða úrslitum bikarkeppni kvenna í knattspyrnu, Mjólkurbikarsins. Leikir í 16-liða úrslitunum fara fram föstudaginn 15. maí og laugardaginn 16. maí. Ekki er ljóst hvorn daginn leikurinn á Akureyri verður.
Dregið var til 16-liða úrslita í höfuðstöðvum Knattspyrnusambands Íslands í hádeginu í dag, og leikirnir eru þessir:
- Valur - Grindavík/Njarðvík
- Tindastóll - ÍBV
- Þór/KA - Stjarnan
- Keflavík - Víkingur R.
- Fram - ÍA
- Þróttur R. - Breiðablik
- Selfoss - FH
- Fylkir - FHL
Breiðablik er ríkjandi bikarmeistari. Blikar unnu FH 3:2 í úrslitaleiknum í fyrra.