Fara í efni
Þór

Hnífjöfn barátta í lokaumferðunum

Bruno Bernat í leik með KA. Mynd: Skapti Hallgrímsson.

Karlalið KA í handbolta sækir Stjörnuna heim í Garðabæinn í kvöld í lokaleik 20. umferðar Olísdeildarinnar, efstu deildar karla. Lokaumferðirnar verða spennandi og baráttan um að vera í efri hluta þeirra átta liða sem fara í úrslitakeppnina er hnífjöfn. 

KA er í baráttu um sætaröðina í efri hlutanum þar sem fimm stigum munaði á liðunum í 2. og 7. sætin að loknum 19 umferðum í deildinni, þegar sex stig voru eftir í pottinum. KA var í 5. sætinu með 24 stig, en Afturelding, Haukar og FH í sætunum fyrir ofan með 25, 26 og 27 stig. Endanleg röð liðanna í töflunni snýst meðal annars um andstæðing í úrslitakeppni og oddaleiksrétt.

Eftir úrslit í öðrum leikjum 20. umferðarinnar getur KA með sigri í kvöld komið sér upp í 4. sætið, sem er mikilvægt sæti upp á oddaleiksrétt í átta liða úrslitunum. Afturelding og ÍBV eru í sætunum fyrir ofan KA fyrir leikinn í kvöld, bæði með 25 stig, stigi meira en KA. Topplið Vals tapaði fyrir Fram í gærkvöld þannig að með sigri í kvöld yrði KA aðeins fjórum stigum frá efsta sætinu. 

  • Olísdeild karla í handbolta, 20. umferð
    Hekluhöllin í Garðabæ kl. 18:30
    Stjarnan - KA
  • Útsending: Handboltapassinn í Sjónvarpi Símans
    Áskriftarsjónvarp

KA vann fyrri leikinn gegn Stjörnunni á Akureyri í nóvember, 36-31.