Hvenær kemur flugstöðin?
10. desember 2025 | kl. 17:00
Þrír kylfingar úr Golfklúbbi Akureyrar voru valdir í landslið Íslands sem taka þátt í Evrópumóti landsliða í næsta mánuði; Veigar Heiðarsson, Bryndís Eva Ágústsdóttir og Lilja Maren Jónsdóttir.
Öll landslið Íslands leika í efstu deild. Karlalandsliðið leikur í Eistlandi og þar verður Veigar í eldlínunni. Sex voru valdir og þess ber að geta að Akureyringurinn Skúli Gunnar Ágústsson, sem nú leikur undir merkjum GKG, er einnig í liðinu sem fer til Eistlands.
Stúlknalandsliðið leikur í Sviss og þar keppa þær Bryndís Eva og Lilja Maren.
Evrópumót kvenna fer fram á Írlandi og piltalandsliðið leikur á Spáni en Akureyringar eiga ekki fulltrúa í þeim liðum.
Mótin fara fram 7. - 11. júlí