Fara í efni
Sverrir Páll

Miðnætursúld leysir sólina af hólmi í ár

Arctic Open mót Golfklúbbs Akureyrar er gjarnan nefnt í sömu andrá og miðnætursólin og kennt við hana. Veðrið hefur oft leikið við kylfinga og ekki síður ljósmyndara, og margar stórglæsilegar sólarmyndir eru til úr 40 ára sögu þessa vinsæla móts. Slíkar myndir verða þó tæpast teknar í ár því sólin virðist hafa brugðið sér frá og í staðinn býður Veðurstofan upp á rigningu og skýjað, að minnsta kosti „með köflum“.

Kylfingar láta aðstæður reyndar ekkert á sig fá og voru hvergi bangnir á Jaðarsvelli í gær þegar keppni hófst. Mótið stendur í tvo daga og leiknar eru 18 holur hvorn dag. Þeir fyrstu voru ræstir út kl. 10.30 í gærmorgun og reiknað var með að þeir síðustu lyku keppni undir morgun. Aftur verður keppt í dag og næstu nótt og keppni lýkur í bítið í fyrramálið

Myndirnar voru teknar í gærkvöldi.

Hvenær kemur flugstöðin?

Sverrir Páll skrifar
10. desember 2025 | kl. 17:00

Mendelssohn á Akureyri

Sverrir Páll skrifar
12. júní 2025 | kl. 12:45

Menntun eða próf II

Sverrir Páll skrifar
18. október 2024 | kl. 14:00

Menntun eða próf I

Sverrir Páll skrifar
17. október 2024 | kl. 16:00

Fagurt er til fjalla

Sverrir Páll skrifar
12. maí 2024 | kl. 11:30

Framhaldsskóli fyrir nemendur

Sverrir Páll skrifar
08. mars 2024 | kl. 06:00