Fara í efni
Sverrir Páll

Arctic Open, drift, vegasalt og bílalimbó

Íþróttir dagsins eru aðallega stundaðar með kylfu og kúlu annars vegar og bifreiðum hins vegar. Arctic Open miðnæturgolfmótið verður sett á Jaðarsvelli í dag. Á svipuðum tíma hefst keppni í drift á svæði Bílaklúbbsins, en í kvöld er komið að vegasalti og bílalimbói. 

Arctic Open fer af stað

Hið árlega alþjóðlega golfmót Arctic Open hefst í dag og stendur fram á laugardag. Þar er keppt í opnum flokki, með og án forgjafar, en mótið er þekkt og vinsælt fyrir miðnæturgolf. Spilaðar eru 18 holur hvorn keppnisdag, 18. og 19. júní, en mótinu lýkur með lokahófi á laugardag. Mótið hefur verið haldið árlega frá árinu 1986, fyrstu 16 árin aðeins í karlaflokki, en í kvennaflokki einnig frá 2002. Upplýsingar um mótið má finna á mótssíðunni á vef Golfklúbbs Akureyrar.

  • Fimmtudagur 18. júní
    Opnunarhátið, setning Arctic Open kl. 10:30
    Fyrsti rástími kl. 11

Þrjár keppnisgreinar á Bíladögum

Bíladagar Bílaklúbbs Akureyrar hófust í gær með bílasýningu, en í dag er komið að keppni í drift og svo vegasalti og bílalimbói í kvöld.

  • Fimmtudagur 18. júní
    Driftkeppni kl. 10-17
    Vegasalt kl. 20
    Bílalimbó kl. 21

Dagskrá og upplýsingar um Bíladaga má finna á vef Bílaklúbbs Akureyrar og Facebook-síðu Bíladaga.

Siðareglur Bíladaga:

  • Við göngum og keyrum vel um bæinn okkar, jafnt gestir sem heimamenn.
  • Virðum hámarkshraða í íbúðarhverfum sem og á vegum úti.
  • Við spólum einungis á akstursíþróttasvæði Bílaklúbbs Akureyrar.
  • Gestir Bíladaga eru jákvæðir og þar af leiðandi þrælskemmtilegir.
  • Við berum virðingu fyrir náunganum og gerum Bíladaga frábæra.
  • Gestir Bíladaga ganga snyrtilega um umhverfi sitt.

Hvenær kemur flugstöðin?

Sverrir Páll skrifar
10. desember 2025 | kl. 17:00

Mendelssohn á Akureyri

Sverrir Páll skrifar
12. júní 2025 | kl. 12:45

Menntun eða próf II

Sverrir Páll skrifar
18. október 2024 | kl. 14:00

Menntun eða próf I

Sverrir Páll skrifar
17. október 2024 | kl. 16:00

Fagurt er til fjalla

Sverrir Páll skrifar
12. maí 2024 | kl. 11:30

Framhaldsskóli fyrir nemendur

Sverrir Páll skrifar
08. mars 2024 | kl. 06:00