Steinþór handarbrotinn og Ívar stendur vaktina
Steinþór Már Auðunsson markvörður knattspyrnuliðs KA er handarbrotinn og verður því ekki með liðinu á næstunni. Fótbolti.net greindi frá þessu í dag. Ívar Arnbro Þórhallsson var í marki KA gegn ÍBV í gær og hann stendur vaktina á næstunni að sögn Hallgríms Jónassonar þjálfara KA.
Blaðamaður Fótbolta.net spurði þjálfarann hvort félagið væri að skoða markaðinn í leit að markverði en svarið var skýrt: „Nei, Ívar er frábær markmaður og býr yfir mikilli reynslu, sennilega mestu reynslunni af öllum markmönnum á hans aldri,“ sagði Hallgrímur meðal annars en Ívar er fæddur 2006, varð tvítugur í maí.
„Hann hefur verið í öllum yngri landsliðum og er þroskaður andlega, ég hef engar áhyggjur af honum. Ég hef engar áhyggjur af honum og markmannsstöðunni. Ívar sýndi hversu góður hann er með frammistöðunni gegn ÍBV, hann var gjörsamlega frábær í gær,“ sagði Hallgrímur um markvörðinn unga.

Steinþór Már meiddist í sigurleiknum gegn Akurnesingum fyrir rúmri viku; þegar hann hugðist kýla boltann frá marki sínu vildi ekki betur til en svo að hann lamdi hann einn Skagamanninn í höfuðið, fékk dæmt á sig víti og handarbrotnaði í leiðinni. Steinþór varði þó mark KA allt til leiksloka en við skoðun síðar kom í ljós hvers kyns var.
Á myndinni efst í fréttinni ver Steinþór Már frábærlega skot Ómars Björns Stefánssonar leikmanns ÍA snemma í seinni hálfleik þegar staðan var 1:0 fyrir Skagamenn.
Næsti leikur KA er nágrannaslagur við Þór næsta mánudag; heimaleikur KA á hinum nýja Greifavelli vestan við íþróttahús félagsins.
- Frétt Fótbolta.net fyrr í dag:
Mendelssohn á Akureyri
Menntun eða próf II
Menntun eða próf I
Fagurt er til fjalla