Landsliðskona Slóvakíu til liðs við KA/Þór
KA/Þór hefur samið við slóvakíska landsliðskonu í handbolta, Lenku Ratvajská. Lenka er 25 ára, örvhent og leikur í hægra horni. Hún kemur til KA/Þórs frá HK Slovan Duslo Šaľa og skrifar undir tveggja ára samning.
Lenka hóf ferilinn hjá HC Bardejov en færði sig síðar til ŠŠK SLŠ Prešov. Þar lék hún í fimm ár með aðalliði félagsins í MOL-deildinni, sameiginlegri deild tékkneskra og slóvakískra liða. Árið 2021 gekk hún til liðs við Slovan Duslo Šaľa og hefur leikið þar síðan.
Hún varð slóvakískur bikarmeistari með liðinu á síðasta tímabili auk þess sem liðið hafnaði í öðru sæti MOL-deildarinnar. Lenka hefur verið valin besti hægri hornamaður Slóvakíu síðustu tvö tímabil og hefur leikið um 30 opinbera landsleiki.
„Lenka lýsir sér sem vinnusömum og ákveðnum liðsmanni sem leggur allt í leikinn. Hún segist kunna best við hraðan og einfaldan handbolta þar sem liðsheildin er í fyrirrúmi,“ segir í tilkynningu á vef KA. „KA/Þór væntir þess að Lenka myndi öflugt dúó í hægra horninu með Joan Johannesen, sem kom til félagsins frá Kyndli í Færeyjum.“
Mendelssohn á Akureyri
Menntun eða próf II
Menntun eða próf I
Fagurt er til fjalla