Fara í efni
Sverrir Páll

Gautaborgarfararnir komnir heim

Fararstjórar og annar þjálfari 3. flokks Þórs/KA, frá vinstri: Þóra Pétursdóttir, Hildur Hrönn Þorsteinsdóttir, Björk Jónsdóttir, Anton Orri Sigurbjörnsson þjálfari, Herdís Haraldsdóttir, Arna Rut Rúdolfsdóttir og Hulda Ragnarsdóttir. Mynd: Haraldur Ingólfsson.

Gautaborgarfararnir frá Þór og Þór/KA, samtals um 80 manns, eru komnir heim eftir rúmlega 30 tíma tafir á flugi að lokinni þátttöku á Gothia Cup knattspyrnumótinu. Upphaflega hefði hópurinn átt að lenda í Keflavík um tíuleytið á sunnudagskvöld, en fluginu var frestað vegna bilunar í vél Icelandair, auk þess sem frekari tafir urðu þar sem rangur varahlutur barst í fyrstu tilraun. 

Flogið var frá Gautaborg um eittleytið í nótt að staðartíma, eða um kl. 23 að íslenskum tíma. Fararstjórunum hjá Þór/KA sem biðluðu til Icelandair í frétt akureyri.net í gær varð þó ekki að ósk sinni um að fá flug norður í skiptum fyrir óþægindin – „okkur þykir vert að nefna að við myndum vera mjög þakklát ef Icelandair kæmi okkur fljúgandi alla leið norður eftir þessi óþægindi,“ voru skilaboðin sem komu frá fararstjórunum í gærkvöld – heldur beið hópanna næturferð með rútum SBA frá Keflavík til Akureyrar, brottför frá Keflavík á þriðja tímanum í nótt og komið til Akureyrar á tíunda tímanum í morgun.

Fararstjórarnir með 4. flokki drengja hjá Þór: Jenný Grettisdóttir, Þórdís Úlfarsdóttir, Ingólfur Bragi Gunnarsson og Gréta Bergrún Jóhannesdóttir. Aðsend mynd.

Útsendari akureyri.net missti af heimkomu 4. flokks drengja hjá Þór, en rétt náði tali af fararstjórum 3. flokks Þórs/KA við komuna heim, fótboltastelpurnar flestar búnar að hirða sinn farangur og farnar heim, nema þær sem áttu mæður í fararstjórninni. Þóra Pétursdóttir er ein fararstjóranna hjá Þór/KA og hefur meðal annars verið í því að svara sænskum fjölmiðlum því bæði dagblað og útvarpsstöð í Gautaborg höfðu samband við Þór/KA í gegnum samfélagsmiðla í gærkvöld og báðu um símanúmer hjá fararstjóra í hópnum.

Skjáskot af frétt Gautaborgarpóstsins í gærkvöld. 

Þó hóparnir séu komnir heim má segja að ferðinni sem slíkri sé alls ekki lokið því nú taka við formsatriði við að fá endurgreiddan kostnað sem hóparnir lögðu út fyrir vegna gistingar og annars. Auk þess er svo næsta verkefni að klára formsatriði og sækja um bætur vegna þessara tafa sem urðu á heimferðinni, en það virkar þannig að hver og einn farþegi í ferðinni þarf að sækja um bætur fyrir sig. Þóru og annarra í fararstjórninni hjá Þór/KA, og væntanlega einnig fararstjóra drengjanna hjá Þór, bíður því það verkefni núna að koma upplýsingum til foreldra allra í ferðinni um það hvað þarf að gera og hvernig á að bera sig að við að sækja um bætur.

Hvenær kemur flugstöðin?

Sverrir Páll skrifar
10. desember 2025 | kl. 17:00

Mendelssohn á Akureyri

Sverrir Páll skrifar
12. júní 2025 | kl. 12:45

Menntun eða próf II

Sverrir Páll skrifar
18. október 2024 | kl. 14:00

Menntun eða próf I

Sverrir Páll skrifar
17. október 2024 | kl. 16:00

Fagurt er til fjalla

Sverrir Páll skrifar
12. maí 2024 | kl. 11:30

Framhaldsskóli fyrir nemendur

Sverrir Páll skrifar
08. mars 2024 | kl. 06:00