Fara í efni
Sverrir Páll

Mars Baldurs er Ungskáld ársins 2025

Verðlaunahafarnir, frá vinstri: Eyrún Lilja Aradóttir, Mars Baldurs og Sólveig Lára Skarphéðinsdóttir.

Mars Baldurs hlaut í dag fyrstu verðlaun í árlegri ritlistakeppni Ungskálda sem voru veitt við hátíðlega athöfn á Amtsbókasafninu. Verðlaunin  voru veitt fyrir verkið „Svefn“, í öðru sæti var Sólveig Lára Skarphéðinsdóttir fyrir verkið „Heilaþoka“ og í þriðja sæti var Eyrún Lilja Aradóttir fyrir verkið „23“.

„Þess má til gamans geta að þau hafa öll unnið ritlistakeppni Ungskálda áður og því nokkuð ljóst að þetta unga fólk á framtíðina fyrir sér í ritlistinni,“ segir í tilkynningu frá Amtsbókasafninu. Í„ keppnina í ár bárust 43 verk frá 23 höfundum og voru þau einstaklega fjölbreytt að þessu sinni. Allt frá stuttum ljóðum og prósum til rúmlega 100 blaðsíðna barnabókar og myndasögu.“

Í dómnefndinni sátu þau Arnar Arngrímsson, rithöfundur, Rakel Hinriksdóttir, listamaður og skáld, og Vilhjálmur B. Bragason, leikskáld og textasmiður. Öll verkin voru nafnlaus þegar dómnefnd fékk þau í hendurnar.

  • Að Ungskáldaverkefninu standa Amtsbókasafnið á Akureyri, Ungmennahúsið í Rósenborg, Verkmenntaskólinn á Akureyri, Menntaskólinn á Akureyri og Atvinnu-, markaðs- og menningarteymi Akureyrarbæjar. Ungskáldaverkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra og Akureyrarbæ.

Hvenær kemur flugstöðin?

Sverrir Páll skrifar
10. desember 2025 | kl. 17:00

Mendelssohn á Akureyri

Sverrir Páll skrifar
12. júní 2025 | kl. 12:45

Menntun eða próf II

Sverrir Páll skrifar
18. október 2024 | kl. 14:00

Menntun eða próf I

Sverrir Páll skrifar
17. október 2024 | kl. 16:00

Fagurt er til fjalla

Sverrir Páll skrifar
12. maí 2024 | kl. 11:30

Framhaldsskóli fyrir nemendur

Sverrir Páll skrifar
08. mars 2024 | kl. 06:00