Fara í efni
Sverrir Páll

Ísland í 23. sæti á HM stúlknalandsliða

Lið Íslands á HM stúlknalandsliða í golfi: Lilja Maren Jónsdóttir (GA), Bryndís Eva Ágústsdóttir (GA) og Embla Hrönn Hallsdóttir úr GKG. Mynd: GSÍ.

Heimsmeistaramóti stúlknalandsliða í golfi lauk í Ontario í Kanada í gær. Þær Bryndís Eva Ágústsdóttir og Lilja Maren Jónsdóttir úr Golfklúbbi Akureyrar (GA) tóku þátt í mótinu fyrir Íslands hönd, ásamt  Emblu Hrönn Hallsdóttur úr GKG. Íslenska liðið endaði í 23. sæti en þetta var í fjórða árið í röð sem íslenskt lið tekur þátt í mótinu. Tvö bestu skor liðsmanna töldu á hverjum keppnishring og lauk íslenska liðið keppni á 48 höggum yfir pari. Lið Bandaríkjanna varð heimsmeistari en bandaríska liðið lék á samtals 15 höggum undir pari.

  • Embla Hrönn átti lægsta heildarskorið af liðsmönnum íslensku sveitarinnar. Hún varð í 56. sæti á 25 höggum yfir pari. Embla lék hringina fjóra á 78, 74, 79 og 78 höggum.
  • Lilja Maren átti sérstaklega góðan þriðja hring. Hún lék þá á 71 höggi, eða pari vallarins, sem var besta skor íslensku keppendanna á mótinu. Hún lauk keppni í 57. sæti í einstaklingskeppninni, á 28 höggum yfir pari. Hún lék hringina fjóra á 79, 78, 71 og 84 höggum.
  • Bryndís Eva hafnaði í 63. sæti einstaklingskeppninnar, á 31 höggi yfir pari. Hún lék hringina fjóra á 79, 76, 78 og 82 höggum.

Þetta var annað árið í röð sem Bryndís Eva tekur þátt í heimsmeistaramótinu. Fyrir Lilju Maren var þetta hins vegar frumraun á þessum vettvangi, líkt og hjá Emblu Hrönn.

Hvenær kemur flugstöðin?

Sverrir Páll skrifar
10. desember 2025 | kl. 17:00

Mendelssohn á Akureyri

Sverrir Páll skrifar
12. júní 2025 | kl. 12:45

Menntun eða próf II

Sverrir Páll skrifar
18. október 2024 | kl. 14:00

Menntun eða próf I

Sverrir Páll skrifar
17. október 2024 | kl. 16:00

Fagurt er til fjalla

Sverrir Páll skrifar
12. maí 2024 | kl. 11:30

Framhaldsskóli fyrir nemendur

Sverrir Páll skrifar
08. mars 2024 | kl. 06:00